06.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (32)
87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Lárus H. Bjarnason:
Háttv. þm. Ak. fór að segja sögur. Hann tók upp þann nýtízku hátt hér á þingi, að segja sögur úr nefnd. Menn verða að virða honum þetta til vorkunnar, því að hann er nýr þingmaður. En vilji hann segja sögur, þá á hann að segja þær réttar. Eg vænti að hann leggi það á minnið framvegis. Hann sagði sögur um það, að maður, sem hann er mjög viðkvæmur fyrir, hafi fengið ákúrur í fjárlaganefndinni útaf fjárveitingunni til síldarmatsmannsins. Eg minnist þess ekki, að þetta sé rétt hjá honum, en hinsvegar má benda á það að fjárveitingin var um alla heimild fram, ef ekki ofaní alla heimild. Á þessu var vakin athygli nefndarinnar, og er sízt láandi þó menn reki augun í annað eins. Á fjárlögunum fyrir 1910—11 voru veittar tvennar upphæðir til tveggja síldarmatsmanna, 1200 kr. til launa og 800 kr. til ferðakostnaðar. Maður skyldi nú ætla, að þessum upphæðum hefði átt að skifta jafnt milli beggja, enda var launaupphæðinni 1200 kr skift jafnt En svo misjafnt var ferðakostnaðarupphæðinni skift, að annar þeirra fékk að eins 200 kr. en hinn fékk kr. 1536,25 til ferðakostnaðar. Af þessu var heimild fyrir kr. 600 veitingu. En nærri 1000 kr. eða 936 kr. 25 aur. umfram alla heimild. Þetta hlaut að vekja eftirtekt nefndarinnar, ekki sízt þar sem sá er meira fékk var náskyldur fráförnum ráðherra. Og eigi síður er þetta eftirtektarvert fyrir það, hvernig reikningur þessa manns er úr garði gerður. Þegar eg var sýslumaður, þá lét eg ávalt fylgiskjöl fylgja hverjum ferðakostnaðarreikningi mínum, enda gekk þáverandi amtmaður, hv. 1. kgk., ríkt eftir því að ekki væri fleygt í hann fylgiskjalalausum reikningum. Með reikningi þessa síldarmatsmanns, sem eg hefi hér í höndum, fylgir aftur á móti ekkert einasta fylgiskjal. Hér er skráð svo og svo mikið fyrir fæði og húsnæði og fleira, án þess að nokkur skilríki fylgi, er sýni að upphæðirnar séu réttar eða jafnvel nokkur grein sé gjörð fyrir, hvað þetta „og fl.“ er. Þetta mundi sæmilegur maður ekki láta sér nægja. Hann mundi ekki líða systursyni sínum slíkt, ekki bróður sínum, ekki einu sinni syni sínum. Hann. mundi ekki gera það, sjálfs síns vegna. Það er því undarlegra að hv. þm. Ak. skuli finna meðnefndarmanni sínum það til foráttu, að hann upplýsti þetta, þar sem hann sjálfur skýrði frá því, að þessi maður skildi ekki einusinni málið, þar sem hann ferðaðist, heldur þurfti að fá sér túlk meðan hann stóð við í New York. Því mátti ekki eins senda hinn síldarmatsmanninn þangað ? hann hefði ef til vill ekki þurft á túlk að halda. En annars vil eg benda á það, að viðskiftaráðunauturinn okkar, þingmaður Dalamanna, álítur ekki þörf á að seilast svo langt eftir markaði fyrir síldina okkar. Hann segir, að nógur markaður sé fyrir hana í Svíþjóð, en ræður aðeins til að selja hana beint til Svíþjóðar, til að fækka dönskum milliliðum. Það er enn því undarlegra, að hv. þm. Ak. skyldi finna að þessu, sem hann hefir sjálfur með undirskrift sinni undir nefndarálitið viðurkent, að þetta athæfi fráfarins ráðherra sé vítavert. Í nefndarálitinu er ekki getið um að neinn ágreiningur hafi verið um þetta atriði, enda var það ekki. Hinsvegar er getið um það í nefndarálitinu, að nefndin hafi klofnað í meiri og minni hluta í loftskeytamálinu og háskólamálinu, því um þau mál var ágreiningur. Vörn hv. þm. Ak. er því ekki sem heppilegust. Trygðin er auðvitað altaf lofsverð, jafnvel við framliðna menn, en augnalaus trygð fer öðrum skepnum betur en mannskepnum. Annars ætlaði eg ekki að tala um þetta atriði. Eg tók í skottið á ræðu hv. þm. Ak., því það varð fyrst fyrir mér.
Eg stóð aðallega upp til þess að minnast á annað mál, sem stendur miklu nær huga mínum; eg á við háskólamálið. Mér fanst kenna kuldagusts, sem oft áður, þarna úr norð-austrinu, og er það því undarlegra sem hv. þm. Ak. var einn af fylgismönnum þessa máls á síðasta þingi. Hann sagði að hér væri verið að reyna að smeygja inn í fjáraukalögin fjárveitingu til háskólans. Þetta er ekki rétt. Í frv. eins og það kom frá nd. er því lýst yfir, að háskólinn skuli stofnaður þ. 17. júní þ. á., á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar, og taka til starfa fyrir alvöru þ. 1. okt. næstk. Það sem við höfum gert er ekki annað en sjálfsögð lagfæring; við höfum fært út upphæðina á því sem háskólahaldið kostar til hausts. Hv. þm. sagði, að þó að hér væri að vísu aðeins um lítilræði að ræða, þá mundi fjárupphæðin aukast, er fram í sækti. Þetta er auðvitað alveg rétt. Ef veittar verða til háskólans 3450 krónur frá 1. okt. til 31. des. þ. á., þá leiðir eðlilega af því að veita verður árlega lögmælt fé til hans áfram, en hafi hann ekki átt við annað en þetta, þá var algjör óþarfi að geta þess. Hann sagði, að tilgangur okkar með þessari tillögu væri að hækka laun núverandi kennara og fjölga launamönnum. Hér hefir hann óvart haft hausavíxl á hlutunum. Tilgangurinn með því að flytja háskólann af pappírnum út í lífið er ekki sá að hækka laun eða fjölga embættismönnum, heldur sá að reyna að lyfta þjóðinni upp og áfram, en til þess að búa til slíka lyftistöng þarf auðvitað fé-afl þeirra hluta, sem gera skal. Það sem hann færði sem ástæður á móti stofnun háskólans nú, var aðallega þrent. Hann sagði að leiðinlegt væri að stofna háskólann áður en við gætum bygt honum sæmilegt hús. Ef við gætum ekki haft hér háskóla án þess að byggja undir hann reisulegt hús, þá næði þessi röksemd nokkurri átt. En til hvers eigum við að bíða þangað til við höfun efni á að byggja stórhýsi undir háskóla þegar þess gerist engin þörf? Vér höfum þetta hús, sem vér stöndum hér í, og getum hæglega notað það. Það stendur autt c. 22 mánuði af 24. Fjárlaganefndin hefir gengið um alt húsið og er sammála um, að nota mætti það jafnvel meðan þing stæði yfir, því rúmið er nóg. Að vísu hefir fjárlaganefnd nd. eitt herbergi niðri, en hún gæti flutt sig upp á háa loft. Háskólinn þarf ekki nema 5 kenslustofur, eina fyrir hverja deild, nema tvær fyrir læknadeildina. Auk þess þarf læknadeildin 2 smástofur fyrir söfn. Hér í alþingishúsinu niðri eru 6 stórar stofur og mörg smá herbergi, minst 4—5. Húsrúmið er því ærið nóg. Þá sagði hv. þm. Ak. að leiðinlegt væri að stofna háskólann fyrri en hann gæti orðið fær um að keppa við aðra háskóla, einkum Hafnarháskólann. En þetta nær engri átt, því að þá kæmi hér aldrei háskóli. Ef við eigum nokkurn tíma að verða færir um að keppa við önnur lönd, þá mundi háskólinn verða ekki sízta meðalið til þess. Hann er eitt af aðalskilyrðunum fyrir því að við gætum gert okkur von um að geta kept hlutfallslega við aðrar þjóðir. Í þriðja lagi sagði hv. þm. Ak. að leiðinlegt væri að stofna háskóla nú, af því við gætum ekki boðið útlendum mönnum að vera viðstaddir. Veit hv. þm. ekki að það er ekki lengur tízka að halda burðargildi, „Barsels gilde“. Þetta er því einu sinni engin átylla, ekkert annað en uppskafnings tildur. Hafi hv. þm. ekki annað fram að bera, þá eru ástæður hans heldur fúakendar og sízt nægilega sterkar stoðir undir atkvæði móti háskólanum. En eg vona líka að hann vilji ekki í alvöru leggjast á móti háskólamálinu. Eg byggi það á því fylgi, sem hann veitti málinu á síðasta þingi. Enda sagði hann, að við gætum flutt deildirnar þrjár saman í þetta hús og veitt fé til kenslu í hinni nýju sérfræðigrein. Með þessu segir hann óbeinlínis að koma eigi eða megi háskólanum í framkvæmd. Það er einmitt þetta, sem við förum fram á og ekki annað. Í rauninni er hann því með okkur, og eg vona líka að allir aðrir hv. deildarmenn verði með. Á síðasta þingi sögðu allir já við háskólamálinu en enginn nei. Einn greiddi ekki atkvæði og hefði að réttu lagi átt að teljast til meirihlutans, þó svo væri ekki gert. Ástæðan til að fresta framkvæmd þessa máls er engin; það er sannarlega miklu fremur ástæða til að flýta því sem mest. Það er svo langt frá því, að við höfum ekki efni á að stofna háskóla, eins og hv. þm. sagði, að við höfum þvert á móti ekki efni á að vera lengur háskólalausir. Auk þess sem það er oss eigi vansalaust. Hvaða meining er í því að sækja til annara landa lakari kenslu en við getum fengið hér heima, einkum í alíslenzkum greinum, svo sem í lögfræði og ísl. málfræði og sögu? Að berja kostnaðinum við er ekki frambærileg ástæða, því hann er svo hverfandi lítill. Munurinn á launakostnaðinum er brúttó 13,800 kr. En móts við eða uppí það mætti telja aðrar upphæðir, er mundu sparast. Það mætti gera sér mat úr prestaskólanum, því að lóðin er góð, þó að húsið sé gamalt. Ennfremur mundi sparast húsaleiga sú er lækna- og lagaskólinn borga. Kostnaðaraukinn verður því varla meira en 10,000 kr. í hæsta lagi, nfl. það er um 12 aurar á hvert nef á landinu eða 84 aurar á hvert heimili. Og þessu fé, sem borgað yrði í kennaralaun m. m., væri ekki fleygt á glæ. Það hefði í rauninni aðeins vasaskifti, því það rynni aftur úr þeirra vösum í aðra íslenzka vasa, eins og blóðið rennur frá hjartanu og til þess aftur. Stofnun háskólans yrði ekki einungis andlegur heldur og jafnvel fjárhagslegur gróði fyrir okkur, því að öllu því fé, sem nú er eytt til fræðslu í útlöndum, yrði þá eytt hér. Að segja að við höfum ekki efni á að stofna háskólann er því ekki rétt. Ef við gerum það ekki, þá kemur það til af því, að við tímum því ekki eða sjáum ekki sóma okkar. Ef við viljum heita sjálfstæð þjóð, eða jafnvel bara þjóð, þá verðum við að tíma því að borga þau tæki sem nauðsynleg eru til þess. Eg skal því ekki trúa öðru en að þetta mál fái lík afdrif hér í deildinni nú sem það fékk hér á síðasta þingi og núna í neðri deild, þar sem það, að viðhöfðu nafnakalli, var samþykt með 19 atkv. Eg trúi því að minsta kosti ekki, að það sé orðið flokksmál „Sjálfstæðisflokksins“ að vera á móti því að háskólinn komist af pappírnum út í lífið.