24.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í B-deild Alþingistíðinda. (326)

107. mál, úrskurðarvald sáttanefnda

Lárus H. Bjarnason:

Eg mun hafa verið sá maðurinn, er mest beittist fyrir því, að frumvarp, samskonar og þetta eða líkt þessu, væri skorið niður á þingi 1909. Nú horfir málinu öðruvísi við en þá. Samkvæmt því frumvarpi áttu sáttanefndir að hafa fullnaðarvald til úrskurðar, en samkvæmt 11. gr. þessa frumvarps má skjóta úrskurði þeirra til dóms. Nú er því sú breyting orðin á frumvarpinu, að eg get fallist á það, og verið því hlyntur.

Hæstv. ráðherra skýrði frá, hvað vakað hefði fyrir framsögum., háttv. þm. Strand. (A. J.), með tillögu hans. Og er það rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að oft væri býsna erfitt að dæma gagnkröfur, En þegar þess er gætt, að hér er aðeins um smáupphæðir að ræða, þá virðist mér ekki hættulegt, þótt sáttanefndum hefði verið veitt úrskurðarvald, einnig er gagnkröfu væri hreyft til skuldajafnaðar. A. á t. d. 100 kr. hjá B. og B. 100 kr. hjá A., og sé eg ekki, að það hefði verið neitt varhugavert, að lofa sáttanefnd að láta slíka skuld fallast í faðma. En eftir atvikum get eg samt felt mig við, að brtill. fái fram að ganga — það má allt af færa út kvíarnar seinna, — enda óséð, hvernig sáttanefndir fara með vald sitt í þessum efnum.