06.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (33)

87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911

Sigurður Hjörleifsson:

Það er svo sem eftir sumu öðru að fjárveitingin til síldarmatsmannanna sé orðin að stórmáli í þessari deild og gat eg áðan um, hvernig á því stæði. Eg skal svara lítið eitt orðum hv. framsögumanns um það mál, en skal þó ekki fara að deila við hann, minn gamla vin, um það að öðru leyti. Hann sagði, að gengið hefði verið fram hjá tilgangi þingsins að því er þessa fjárveitingu snerti. Eg skal rifja upp lítið eitt sögu þessa máls. Árið 1909 var farið fram á það af síldarmatsnefndinni, að veittar væru 1000 kr, til hvors síldarmatsmannsins. Það verða að teljast sæmileg laun og ekki of há. En þegar kom til fjárlaganefndarinnar og deildarinnar, þá varð sparnaðurinn ofan á og fjárveitingin var færð niður í 600 kr. til hvors. Með þessu var loku skotið fyrir það að síldarmatsmennirnir gætu lagt nokkuð af launum sínum til utanfararkostnaðar. Mér var það þegar ljóst, að meira fé þyrfti, ef gagn ætti að vera af. Því reyndi eg að fá því framgengt að fjárveitingin væri hækkuð, en það var árangurslaust. Sú varð einnig reyndin á, að þessir menn gátu ekki komið fram þeirri rannsókn á síldarmarkaðinum, sem þeim var falin, nema meira fé yrði veitt. Því réðist stjórnin í það að veita þetta fé framyfir það sem þingið ætlaðist til Það getur ekki talist að ríða í bága við tilgang þingsins, þó að stjórnin veiti fé umfram veitingu þingsins, ef það verk, sem þingið ætlaðist til að unnið yrði fyrir þetta fé, verður ekki að öðrum kosti unnið á viðunanlegan hátt. Hv. þm. gerði mikið úr því að sá síldarmatsmaðurinn, sem þetta fé var veitt, hafi verið systursonur fráfarins ráðherra. Mér er fullkunnugt um það, að hinn síldarmatsmaðurinn samþykti það fullkomlega, að þannig væri skift milli þeirra ferðakostnaðinum, að Jóni Bergsteinsson fengi meira.

Þá þótti hinum hv. 5. kgk. að ekki væru næg fylgiskjöl með reikningnum, en eg vil benda á, að þó að háttv. 5. kgk. kunni að hafa getað látið fylgiskjöl fylgja reikningum sínum, forðum daga, er hann ferðaðist um sitt mikla ríki, þá er það engin sönnun fyrir því að auðgert hafi verið að láta fylgiskjöl fylgja yfir hvert kostnaðaratriði á þessari ferð, enda fer því fjarri að stjórnin hafi ætíð áður verið mjög kröfuhörð við starfsmenn sína, og það þó auðvelt virtist að gera sér grein fyrir kostnaðinum. Slík nákvæmni var víst ekki venjan í tíð Hafsteinsstjórnarinnar, að minsta kosti ekki stundum, og kunnugt er mér um mann einn, sem sent hafði stjórnarráðinu á þeim tímum nokkuð háan reikning, án fylgiskjala sem það reyndar vildi ekki borga fyrst í stað; en greiddi þó, þrátt fyrir það að hann var firna ósennilegur; maður þessi var lögreglustjóri nyrðra, og held eg mér sé óhætt að segja, að æði margt hafi verið skrítið við reikninginn þann, t. d. fékk hann 80 krónur í ferðakostnað frá Akureyri til Siglufjarðar, og margt var eftir þessu. Maðurinn sendi aldrei stjórnarráðinu fylgiskjölin, en fékk reikninginn borgaðan samt; og þess má geta, að þetta gerðist, er sú stjórn sat að völdum, er háttv. 5. kgk. fylgdi.

En þar sem háttv. 5. kgk. var að tala um að þessi síldarmatsm. hefði ekki kunnað málið og hefði þurft að nota túlk, þá verð eg að segja, að eg fyrir mitt leyti finn ekki athugavert við það, þótt hann, t. d. í annari eins stórborg og New-York, hefði fengið sér leiðsögumann í 2—3 daga; eg gæti vel trúað, að hv. 5. kgk. hefði líka þurft á túlk að halda, og mundi eg enga minkun hafa talið honum í því. Annars vil eg geta þess, að þessi síldarmatsm. kann dável ensku, þótt hann hafi að mestu numið hana af sjálfum sér, og fyrir það á hann fulla virðingu skilda. Þá vil eg algerlega mótmæla því, að engin þörf hafi verið að senda manninn til Ameríku; því að nú er fullsannað, að markaðurinn fyrir síldina, sem við getum aflað hér, er að verða okkur ófullnægjandi á Norðurlöndum, og þá er auðsætt að vér hljótum að leita annað. Enn fremur vildi háttv. 5. kgk. halda því fram, að afstaða mín til þessa máls væri eingöngu sprottin af trygð við fyrv. ráðh. Björn Jónsson. Þetta er algerður miskilningur; en eg skal kannast við það, að eg vil á engan hátt að verk þau sem hann hefir unnið í þarfir þjóðarinnar sæti ranglátum dómum. Eg hefi einskis notið af hr. Birni Jónssyni persónulega; en það vil eg taka fram, að eg er ekki eins og tóan, sem aldrei verður trygð, þótt sumum mönnum sé ef til vill þannig farið. Þá er að minnast á háskólann. Það er rétt að eg var með því, að lögin væru afgreidd á síðasta þingi; en þar með er engan veginn sagt, að eg álíti þegar í stað fært að veita til háskólans fé. Háttv. sami þm. tók þá fram berum orðum, að við værum engan veginn skyldir til þess að stofna skólann strax, þótt lögin væri samin. En það verð eg að segja, að mér finst nú á þessum tímum hálfundarlegt, að menn skuli vilja rjúka til að stofna háskóla, þar sem fjárhagurinn er ekki sem beztur — sumir segja afarþröngur. Þessar 13—14 þúsundir árlega hljóta að verða alls ónógar; þyrfti víst hækkun strax í fjáraukalögunum 1912—13; og mér finst full ástæða að þannig löguðum fjárveitingum sé ekki laumað inn í þingið athugunarlaust. Þá var þingmaðurinn oftar en einu sinni að tala um, að eg hefði haft hausavíxl á hlutunum; mér er alveg óskiljanlegt, hvernig hann fór að koma því orði að; það sem eg tók skýrt fram, var það, að hvað sem öðru liði, þá værum við skyldir til að leggja rækt við þær mentastofnanir, sem fyrir eru í landinu. Annars fanst mér hv. 5. kgkj. leggja aðaláherzluna á laun og titla. Það er líka talsverðar munur á því, að verða t. d. Prófessor eða Rektor Magnificus, eða vera einungis einfaldur „stjóri“. Þá vil eg og í þessu sambandi benda á. hvað biskup landsins sagði í Kirkjublaðinu fyrir 2—3 árum, er hann taldi þar upp nemenda fjölda á embættisskólum vorum hér heima og reyndust þeir þá næsta fáir — hann sagði að á aðsókninni að skólum þessum væri ekki mikill háskólabragur, og að fyrsta sporið, sem við þyrftum að stíga, væri það, að hæna námsmenn að okkar eigin skólum; og er það dagsanna.

Eg benti áður á það, að hægt væri að flytja saman þessar þrjár embættisstofnanir, sem nú höfum við, í þetta hús — alþingishúsið — til þess að sýna hversu til tækist í framtíðinni; þetta er enn hægt, án þess að háskóli sé stofnaður, og eg fyrir mitt leyti gef ekki mikið fyrir nafnið tómt. Háttv. 5. konungkj. endaði ræðu sína á þeim orðum, að þessi fjárveiting til háskóla væri að eins vasaskifti eða eins og blóðið, sem rynni frá hjarta til hjarta. En það er ekki sama, hvernig þetta blóð rennur. Eg minnist þess út af síðustu orðum hv. 5. kgkj., að heyrt hefi eg hann nefndan þingsins herra, en aldrei þingsins hjarta.