21.02.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (338)
128. mál, fræðsla æskulýðsins
Ráðherra (B. J.):
Það er óþarft að þrasa langt um þetta mál. Eg vil að eins benda háttv. 6. kgk. á, að eg átti við afstöðu hans til fyrv. stjórnar, eins og hún varð síðar, en óþarfi að fara út í þá sálma nú. Mig gleður það, að hann hefir heitið fylgi sínu við málið, að svo miklu leyti sem hann getur. Eg skoða þetta frumvarp ekki sem umsteypu á gömlu lögunum, heldur er að mörgu leyti fylgt líkri stefnu og þar.