27.02.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (346)

20. mál, skoðun á síld

Sigurður Hjörleifsson:

Eins og hinni háttvirtu deild er kunnugt, flutti eg á síðasta þingi frumvarp, sem fór í líka átt og það, sem nú liggur fyrir.

Afdrif þess frumvarps urðu þau, að það var tekið aftur í samráði við nefnd þá, er kosin var hér til þess að íhuga það. En í stað þess var samþykt þingsályktuntillaga um að skipaðir væru síldarmatsmenn á Akureyri og Siglufirði.

Frumvarp mitt tók eg ekki aftur af því, að eg væri að öllu ánægður með úrslit málsins, heldur af því, að eg þóttist sjá fyrir forlög málsins í þinginu, væri því haldið til streitu og jafnframt leit eg svo á, að vafasamt væri, að sú hugsun sem felst í frumvarpinu, væri orðin nógu þroskuð hjá útgerðarmönnum sjálfum.

Nú er hún aftur á móti þroskuð orðin og full ástæða til að taka hana til greina. Nú eru allir einhuga, sem eigi var þá, um þá ósk, að síldarskoðun komist á, einkanlega á herpinótarsíld, en með reknetasíld er það ekki eins mikið kappsmál.

Þetta frumvarp, sem nú liggur fyrir, er líkt hinu fyrra frumvarpi, að eins eru allmargar orðabreytingar og svo ein veruleg efnisbreyting.

Eftir frumvarpinu 1909 bar landsjóði kostnaður við alt undirmat og var hér um töluvert mikla fjárhæð að ræða. Frumvarp þetta er miklu álitlegra fyrir landsjóð, þar sem útgerðarmenn vilja nú taka upp á sig þennan kostnað og sýnir það einnig, hve þeim er þetta mikið alvörumál.

Mér hefir verið skýrt svo frá, að um helmingur þeirrar síldar, sem kemur á land við Eyjafjörð, sé skemd vara. Hún er skemd áður en síldin er söltuð. Þegar hún svo kemur til útlanda fæst mjög lítið fyrir hana, en svo spillir hún og mjög sölu á góðri síld.

Eg skal benda á, að síðastliðið sumar var nokkur hluti þeirrar síldar, er send var af Siglufirði til Stokkhólms — þrír skipsfarmar mun það hafa verið — svo skemd vara, að til stóð, að heilbrigðisvaldstjórnin þar léti gera hana upptæka; því var með naumindum varnað fyrir ötula framgöngu norska sendiherrans í Stokkhólmi og er þetta ekki glæsilegt fyrir sölu þessarar vöru.

Á síðasta sumri minkaði að mun síldarútvegur við Eyjafjörð og er að búast við enn meiri afturför í sumar. Fyrir skömmu fiskuðu þar 20 reknetaskip, síðastliðið sumar voru þau að eins 5 og búast má við, að ekkert verði þar að sumri nema hér verði tekið í taumana. Hér er að ræða um mjög þýðingarmikið mál fyrir héraðið og tekjugrein fyrir landsjóð.

Treysti eg því, að háttvirt deild taki nú málið til íhugunar og skal eg ekki fjölyrða um það meir að sinni, en leyfi mér að stinga upp á að skipuð verði í það 5 manna nefnd.