05.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í B-deild Alþingistíðinda. (365)

122. mál, frestun aðflutningsbanns

Kristinn Daníelsson:

Eg stend ekki upp til að brjóta þann góða sið, sem fylgt hefir verið hér í Ed., að vera ekki margorður við fyrstu umræðu; eg geymi það til 2. umræðu. En hér hefir verið komið við eitt atriði, sem segja má að snerti frumvarpið í heild sinni, og sennilega verður ekki minst á aftur við aðra umræðu. Þetta atriði var það, sem hv. flutningsmaður tók fram í byrjun ræðu sinnar, að það væri í rauninni ekki þingið, heldur stjórnin, sem ætti að bera fjárhag landsins fyrir brjósti. Þetta kann að eiga við annarstaðar, en hjá oss er nokkuð öðru máli að gegna. Hér fylla þingmenn fjárlögin með mörgum og miklum útgjaldapóstum, og virðist því rétt, að þeir hugsi einnig fyrir tekjunum. Eg get því ekki lastað háttv. flutningsmann, þótt hann telji sér skylt að vinna að tekjuhlið fjárlaganna. En hann setti þetta mjög í samband við fyrv. stjórn, og taldi henni það til ámælis, að hann skyldi þurfa að gera það, þó hann seinna í ræðunni kannaðist við, að hann ef til vill væri nokkuð harðorður í hennar garð út af þessu. Eg tek þetta fram vegna þess, að eg vil ekki láta fyrv. stjórn standa óvarða fyrir þessum ámælum. Hún lagði fyrir þingið frumvarp til fjárlaga, þar sem tekjur og gjöld stóðust nokkurn veginn á. Verður því ekki annað sagt, en að hún hafi gengið sæmilega frá sínu verki. Auðvitað kynni að mega segja, að réttast væri af stjórninni að áætla alt af tekjuafgang, því að hún á alt af von á allri lestinni á hvalfjöruna eins og sagt er. En fráfarin stjórn hafði líka í bakhöndinni aðra aðferð til að sjá fyrir auknum tekjum. Háttv. flutningsmanni er kunnugt, að stjórnin hafði bak við eyrað að gera það á annan hátt en með stjórnarfrumvarpi. Enda gerir það lítið til, hvort slík frumvörp eru borin fram af stjórninni sjálfri, eða að hennar tilhlutun af einhverjum þm. Munurinn er að eins sá, að stjórnarfrumvöpin verða að vera bæði á dönsku og íslenzku. Sem sagt, vakti það fyrir stjórninni, að fram mundi koma það frumvarp, sem nú er komið fram í n. d.; og hygg eg að það, ef það næði fram að ganga, mundi bæta sæmilega úr þeirri þörf á tekjuauka fyrir landsjóð, sem orðin er, og vakir fyrir flutningsmönnum þessa máls. Af þessu hygg eg, að menn muni skilja, hvað sé álit mitt um þá tillögu, sem jafnvel sjálfur flutningsmaðurinn kallaði örþrifaráð. Eg er samdóma þeim mönnum, sem sagt hafa, að þörfin til þessa sé ekki eins brýn, eins og háttv. flutningsmaður álítur. Fjarri mér er það þó að ámæla honum fyrir þetta, hann er gamall og reyndur, gætinn og varkár þingmaður. Og eg efast ekki um, að hann hafi gert þetta eftir hvötum samvizku sinnar og sannfæringar. En hitt get eg ekki kannast við, að hann hafi gert flokk sínum nokkurn greiða með því að koma með þetta frumvarp, eins og hann sagði, heldur miklu fremur ógreiða. Að vísu var bannmálið ekki flokksmál á þingi; það átti marga og á mikilsverða vini í hinum flokknum. En þó verður því ekki neitað, að aðalfylgi þess er í sjálfstæðisflokknum. Enda kom það fram og brauzt fram til sigurs á þeim tíma, er sá flokkur hafði meiri ráðin. Því verður það ekki sagt, að þetta mál sé flokknum alveg fráskilið. Eg skal ekki fara fleiri orðum um málið að sinni; það má vera, að eg geri það við 2. umræðu, því eg þykist mega spá því, að það komist til 2. umræðu, þó að eg styðji það ekki, og þykir mér þá rétt allra hluta vegna að skipa nefnd í það. Eg hefi talað mig saman við flokksmenn mína fyrir fundinn, og gert það að tillögu minni, að 5 manna nefnd verði kosin til að íhuga málið. En eg tek það fram, að þá uppástungu má ekki skilja á neinn hátt sem stuðning af minni hálfu, heldur kem eg með hana af því, að nauðsynlegt er, að málið fái sem allra beztan undirbúning til 2. umræðu.