06.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (37)
87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Ráðherrann (Kristján Jónsson):
Eg kann ekki við að láta ganga hér til atkvæða án þess að lýsa afstöðu minni í einu af þeim málum, sem hér á að ganga til atkvæða um. Það er málið um loftskeytasambandið milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, sem eg á við. Fyrir nokkrum árum var það uppi á baugi hér og þá mikið um það rætt, hvort vér ættum heldur að hafa loftskeytasamband eða símasamband við önnur lönd. Eg kannast við það, að eg var því þá fylgjandi, að vér fengjum
loftskeytasamband við önnur lönd. Þetta varð nú ekki ofaná, eins og kunnugt er. Sími var lagður til landsins og því máli þar með ráðið til lykta. Mig minnir að það væri einn háttvirtur þingmaður, sem enn situr hér á þingi, ekki hér í deildinni, en í hinni, háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.), sem kom fyrstur fram með þá tillögu, að vér skyldum hafa firðritunarsamband við útlönd, en símasamband innanlands. Sú tillaga þótti mér aðgengileg. Það er fyrst nú, að tillaga um firðritunarsamband innan lands í stað síma kemur fram fyrir alvöru. Þegar nú á að ráða þessu máli til lykta, verður að gæta þess, hve langt vér erum komnir á leið í þessum efnum. Það er búið að skapa hér símakerfi, sem nær yfir mikinn hluta landsins. Það liggur því beinast við, að þegar einhverju er bætt við þetta símakerfi, verði það sameinað við það, en slíkt er ekki hægt með öðru móti en með þræði. Þessi nýja viðbót verður að vera gerð með sömu grundvallarreglu og það, sem á undan er komið og fyrir er af kerfinu, hefir verið gert. Í þessu efni verð eg að leyfa mér að skírskota til þess manns, er mesta sérþekking hefir af mönnum hér, í þessu efni, eg á við símastjórann. Því hefir verið kastað fram hér í deildinni, að þessi maður hafi ekki vit á þessu máli. Þessu verð eg að mótmæla. Þótt hann hafi ekki sérstaklega lagt stund á loftskeytafræði, þá leiðir það af stöðu hans, að hann hlýtur að vera kunnugur þeim efnum, er hér að lúta, auk þess sem hann er allra manna kunnugastur hér á landi og ber bezt skyn á, hvað oss hentar í þessu efni. Eg verð, sem sagt, að mótmæla þeim ummælum í garð jafn-heiðarlegs embættismanns og símastjórans, sem háttv. þm. V.-Sk. lét sér um munn fara. Eg álít að landsstjórnin verði að fara eftir tillögum hans í þessu efni og hið sama verður þingið að gera.
Það eru einkum tvö atriði, er líta verður á í þessu máli. Annað atriðið er óskir þeirra, sem verið er að vinna fyrir. Nú er það fullkunnugt, að allur þorri Vestmannaeyinga krefst einmitt símasambands, þótt þeir kunni að vilja loftskeyti heldur en ekki neitt. Það er undarlega mikið kapp, sem hinn hv. þm. V.-Sk. leggur á þetta mál. Er honum ekki kunnugt, hvernig sveitungar hans líta á þetta mál? Þá er hitt atriðið, og það er, að þótt ekki sé hægt að segja það nema með því að spá, þá er eg samt fullkomlega sannfærður um, að þótt loftskeyti komist á stofn og þótt alt gangi vel, líða ekki nema 3-4 ár þangað til Vestmannaeyingar, að kalla, neyða þingið til að koma á símasambandi milli lands og eyja. Reynslan sýnir, að ekkert annað samband en talsímasamband fullnægir þörfum og kröfum almennings. Hann gefur ekki nokkurn skapaðan hlut fyrir ritsímasamband — það er aðeins talsíminn, sem honum þykir nokkurs virði. Eg vil ekki setja þetta loftskeytasamband á stofn og eiga það svo á hættu, að á eftir verði komið til þingsins og heimtað talsímasamband. Hitt er aftur álit mitt, að vér ættum sem allra fyrst að kostur er á að koma hér í Reykjavík á stofn loftskeytastöð til gagns fyrir skip og siglingar. En þá ætti sú stöð að vera svo sterk, að hún gæti náð sambandi við Noreg, Írland og Grænland. En þessi stöð, sem nú er ráðgjörð, verður eigi styrkari en svo, að hún nær ekki sambandi nema ef til vill við Færeyjar.
Eg vildi ekki leiða hjá mér að láta í ljós álit mitt á þessu atriði, áður en gengið verður til atkvæða.
Enn ætla eg að bæta einu atriði við, Þegar síminn var lagður hér til lands og um landið fyrir nokkrum árum, óttuðust margir, að símaslit mundu verða tíð. En reynslan hefir sýnt, að þessi ótti var ekki á rökum bygður. Það hefir aðeins eitt verulegt slit átt sér stað og það var á millilandasímanum. Önnur slit eru varla teljandi og viðgerð á þeim hefir kostað mjög lítið. Ef þráðurinn milli Vestmannaeyja og lands verður eins traustur og millilandaþráðurinn, er ekkert að óttast í þessu efni. Eg hefi spurt símastjórann um þetta og hefi það eftir honum, og eg byggi mikið á orðum hans.
Um háskólann vil eg geta þess, að eg bjóst við í hitteðfyrra, þegar alþingi réðst í að samþykkja lög um stofnun háskóla á Íslandi, að það mundi ekki líða mörg ár áður en lögin kæmu til framkvæmda. Hér er heldur ekki svo hart af stað farið, að ekki megi undir rísa. Vitaskuld verður kostnaðarauki að honum, en það má ætla að alþingi hafi gert sér það ljóst, er það samþykti lögin um háskólann fyrir 2 árum síðan. — Eg álít, að lögin ættu að koma til framkvæmda í haust, eg sé enga ástæðu til að fresta framkvæmd þeirra lengur.