06.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Lárus H. Bjarnason:
Eg þarf ekki að eyða mörgum orðum til að svara háttv. þingdeildarmönnum, því að hv. framsögum. hefir gert góða grein fyrir flestu af því, er eg vildi sagt hafa. En eg get ekki komist hjá því að víkja nokkrum orðum að þeim háttv. þingmanni (S. Hj.), er stendur þarna andspænis mér, ekki ofboð óánægður með sjálfan sig, fremur en hann á vanda til. Eg rak áðan ofaní hann ýms öfugmæli hans um síldarmatsmanninn, enda þorði hann ekki að segja að eg hefði farið þar með rangt mál.
(Sigurður Hjörleifsson: Ósatt.)
Eg færði ástæður fyrir því, að fyrverandi ráðgjafa hefði verið mislagðar hendur, er hann lét systurson sinn ferðast um Vesturheim, mállausan, eins og háttv. þm. Ak. upplýsti að hann hefði verið, með því að segja að hann hefði orðið að kaupa sér túlk í New York fyrir 20 kr. á dag. Jafnframt skaut þm. því að mér, að mér mundi hafa farið á líka leið, og skal eg ekkert um tungumálakunnáttu mína segja, en fyrir því geri eg ráð, að háttv.þm Ak. mundi sjálfur þurfa túlk í útlendum málum, jafn-ósýnt og honum er um að tala íslenzku, enda var maðurinn aldrei lærdómsmaður, gjörði sem sé það þrekvirki, að taka lakara háskólapróf á lengri tíma en nokkur annar Íslendingur. Eg hafði getið ónefndrar skepnu í sambandi við trygð þm. til fyrv. ráðherra. Hann bendlaði mig aftur á móti klaufalega við tóu. og átti það víst að þýða, að eg hefði launað H. H. illa veitinguna á forstöðumannsembættinu við lagaskólann. Eg skal nú ekkert úti það fara, hvor okkar H. H. hefir stutt hinn betur, enda mun hvorugur hafa kvartað fyrir þm. Það er satt, að H. H veitti mér nefnt embætti, en um það eða réttara sagt styrkinn til undirbúnings því, sótti ekki nema einn kandídat, og hann var bæði yngri en eg og hafði lægri einkunn. Svo að það getur naumast talist óbætandi góðverk, er ekki verði launað nema með rakkatrygð. Aftur á móti er sagt, að hrokkið hafi ofaní þm. Ak. alveg óverðskuldað sá eini biti, sem losnað kvað hafa þar nyrðra í valdatíð fyrv. ráðherra, óverðskuldað að öðru leyti en því að þm. hafði rúið þann mann af gærunni, er bitinn var tekinn af. Annars hefði eg líklega, úr því eg fór á annað borð að lýsa þm., helzt átt að líkja honum við Sancho heitinn Panza, því að eins og fyrv. ráðh. var líkastur Don Quixote sáluga, eins var og er þm. líkari S. P. en skepnunni, sem eg átti við, því að S P. fylgdi húsbónda sínum engan veginn af trygð, heldur af von um trúrra þjóna verðlaun.
Það var líka rangt, sem hinn háttv. þm. sagði, að eg hefði verið höfundur tillögunnar að því að stofnun háskólans skyldi ekki fara fram fyr en fé væri veitt til þess. Það var einmitt háttv. þm. Ak., sem þá tillögu átti. En það er aftur rétt haft eftir mér, að þingið væri ekki skuldbundið til að koma honum þegar í stað á stofn, þótt það samþykti lög um hann Það er rétt, að þingið er að forminu til óbundið, enda einmitt þessvegna nú farið fram á fé í því skyni. Þá sagði hv. þm. Ak., að þessar 3500 kr. mundu ekki hrökkva til fyrir laununum. Slái hann upp í lögunum, og þá mun hann sannfærast um að þau nema ekki meiru í bráðina. Um annan kostnað er tæplega að tala svo nokkru nemi. Húsið fáum við fyrir ekkert og skólaáhöld, borð og bekki m. m. eiga skólarnir viðunanleg. Háttv. þm. bar mér á brýn, að eg mundi leggja mesta áherzluna á titilinn og launin, sækja málið svo hart þessvegna. En það vill nú svo til, að eg hefi í bráðina engan fjárhagnað af breytingunni, verð kominn hátt að sextugu, þegar eg næ hámarki launanna. Það er og miskilningur, að vegur minn vaxi, þótt eg verði svokallaður prófessor. Eg hefi nú sömu „lögtign“ og prófessorar. Hinn háttv. þm. Ak. (S. Hj.) hefir hér óvart tekið hendina úr vestisbolungi sínum og stungið henni í sinn eigin barm. Hv. þm. sagði ennfremur, að við ættum ekki að stofna háskólann fyr en við gætum hænt nemendur að honum. Sér hann ekki frv., sem liggur hér fyrir framan okkur á borðinu? Við erum með því einmitt að hæna nemendur að háskólanum, með því að gera það að skilyrði fyrir embættisgengi hér á landi, að hafa numið við háskólann. Eða er þetta alt leikur, alt loddaraskapur? Nei! Því trúi eg ekki fyr en í fulla hnefana.
Út af því að eg hafi einhverntíma verið kallaður þingsins herra, en aldrei „þingsins hjarta“, leyfi eg mér aðeins að spá því, að verði þm. nokkurntíma einkendur með nafni, er bendi í einu til þingsins og mannslíkama, þá verður hann aldrei kallaður þingsins hjarta, og því síður þingsins höfuð, af skiljanlegum ástæðum, hann mundi því einna helzt verða kallaður: þingsins endi.