24.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (389)

86. mál, sjúkrasamlög

Kristinn Daníelsson:

Eg skal benda á það, að í 3. gr., 3. tölulið, er vitnað í 2. staflið, en á að vera 2. tölulið. Þetta mætti líklega leiðrétta sem prentvillu. — Eg skal ekki fara að kasta mér út í umræðurnar um hina fjárhagslegu hlið málsins. En eg vil geta þess, að mér hafði einmitt dottið hið sama í hug sem hæstv. ráðherra, að hér eru á dagskrá í dag tvö frv, sem hafa útgjaldaauka í för með sér fyrir landsjóð, ef þau verða samþykt. Þetta leiðir til þess, að brýna nauðsyn ber til að þing og stjórn leggist á eitt með að útvega landsjóði verulegan tekjuauka, til að standast þessi og önnur aukin útgjöld. Um 77. gr. fátækralaganna vil eg geta þess, að eg er algerlega mótfallinn, að henni sé breytt, eða úr gildi numin. Það er nauðsynlegt, að landsjóður hlaupi undir bagga með hreppum, þegar þeim er skipað af læknum að leggja á sig kostnað við sjúkrahúslegu þurfalinga, sem þeir fá ekki staðið undir með neinu móti. Þetta er því eðlilegra, sem ýmsum gjöldum hefir í seinni tíð verið þokað yfir á sveitirnar, sem að réttu lagi ættu að hvíla á landsjóði, t. d. útgjöldum við síma, símastöðvar o. fl. Sömuleiðis hafa sveitir víða lagt á sig stórmikinn kostnað við vegagerðir, sem landsjóður ætti að sjálfsögðu að standa straum af. Þær hafa kosið heldur að gera nauðsynlega vegi á eigin kostnað, en að bíða eftir því, að þingið veitti fé til þeirra. Af þessum og öðrum ástæðum álít eg alveg nauðsynlegt að hlaupið sé undir bagga með sveitunum í slíkum tilfellum, sem átt er við í 77. gr. fátækralaganna, og má hún alls ekki falla burtu.