15.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (396)
92. mál, brúargerð á Jökulsá
Sigurður Stefánsson:
Eg get tekið undir með háttv. 5. konungkj., að full þörf sé á að athuga mál þetta rækilega. Frá mínu sjónarmiði getur það ekki komið til nokkurra mála, að þingið samþykki heimild þessa.
Hæstv. ráðherra sagði hér í þingdeildinni fyrir skemstu, að hann mundi stuðla að því eftir mætti, að nokkurn vegin skapleg fjárlög næði fram að ganga á þingi þessu; en mér fyrir mitt leyti liggur nærri að draga í efa, hvort slíkt stæði í hans valdi, þrátt fyrir vafalaust bezta vilja hæstv. ráðh., eins og þeim fjárlögum er farið, sem fyrir þetta þing voru lögð. Eg vil líka leyfa mér að benda á það, að þannig löguð heimild, sem þessi, er hér er farið fram á, er altaf skoðuð sem fullkomið, bindandi loforð, og eg hefi ekki trú á því, að á næsta þingi verði miklu auðveldara að skapa viðunanleg fjárlög en nú, jafnvel þótt maður vildi spá einhverju um það, að hægt væri ef til vill að nálgast það eitthvað, að þau yrðu dálítið skaplegri.
Mér dylst auðvitað ekki, að á þessi er stórhættuleg, og núna á augnablikinu var hún jafnvel svo hættuleg, að einn háttvirtra þingdeildarmanna var rétt að segja drukknaður í henni, hefði hæstv. forseti ekki komið til bjargar.