31.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (443)
22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Ráðherra (Kr. J.):
Að minni hyggju er þetta frumvarp vanhugsað. Eg held að það væri rétt að fresta því, þar til á næsta þingi, er séð verður fyrir lok stjórnarskrárbreytingar þeirrar, sem nú er í ráði og þingið hefir til meðferðar, svo að það geti verið í sem beztu samræmi við það. Það eru og ýms atriði í þessu máli, sem eru mjög athugaverð. Fyrsta atriðið verður fyrir manni, er litið er á fyrstu línu frv. er hljóðar svo: „Ráðherra Íslands skal hafa í eftirlaun 1000 kr. á ári“. Hér má spyrja mörgum spurningum, sem frumv. svarar ekki. Nú verður t. d. embættismaður ráðherra, hann heldur embætti sínu lausu 1—2 ár, er ekki ráðherra lengur og sezt síðan aftur í embætti sitt. Getur hann þá fengið 1000 kr. í eftirlaun? Þetta er ekki ljóst og þetta þyrfti að athuga, áður en málinu er ráðið til lykta. Þá er annað atriði, er eg vil drepa á. Embættismaður hefir farið úr embætti sínu 2—3 ár og tekur síðan við því aftur. Hvernig fer nú, þegar hann hefir verið ráðherra, eru þau ár reiknuð með, er hann var ráðherra, þegar á að ákveða eftirlaun hans sem embættismanns? Það eru mörg atriði úr hinum afarflóknu eftirlaunalögum, er hér gætu komið til greina og valdið deilum og vafningum. Svo er eitt atriði enn, er eg vildi minnast á. Eg býst við, að eg hverfi aftur í embætti mitt, er eg fer úr ráðherrastöðunni líklega eftir skamman tíma. En þá kemur sú spurning, hvaða kröfu eg gæti gert til eftirlauna samkv. þessu lagafrv. Þá er og eitt atriði í þessu máli, sem eg vildi minnast á, og það er almenns eðlis. Öll þessi stefna, sem ríkir hjá þjóð og þingi í eftirlaunamálinu, er röng og skaðsamleg frá rótum. Hún miðar að því að byrgja fyrir alla útsjón til þess, að þjóðin geti fengið nýta starfsmenn í þjónustu sína. Eg hefi tekið þetta fram oft áður hér á þinginu. Fyrir 11 — 12 árum hélt eg hér í deildinni langa ræðu um þetta efni og eg hefi síðan ekki haft ástæðu til að breyta skoðun minni. Laun embættismanna eru nú orðin svo lág, að ekki er viðunandi. Það þarf að hækka launin, svo að embættin verði eftirsóknarverð launanna vegna. Ef eg hefði vitað það fyrir 30—40 árum, hvaða kjör biðu mín á þeirri braut, sem eg hefi gengið, hefði mér ekki dottið í hug að fara þann veg. Eg vildi gera þessa almennu athugasemd, sem hv. þm. Ísf. (S. St.), sem nú horfir á mig, mun kannast við að eigi er ný. Það verður að sjá fyrir því, að landið geti fengið sæmilega embættismenn. Það eru ekki litlar kröfur, sem gerðar eru til þeirra, er búa sig undir að verða embættismenn. Og það verður að gæta þess, að menn hafa orðið að verja 10—15 árum af æfinni til undirbúnings undir embættin, og að þeir þurfa að fá endurgjald fyrir þann kostnað, er þeir hafa haft af því.