31.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (449)
22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Ráðherrann:
Það er rétt, sem háttv. 5. kgk. þm. sagði, að það stendur í eftirlaunalögunum frá 4. marz 1904, að eftirlaun missast gersamlega, ef sá sem eftirlauna nýtur tekur við embætti með hærri launum. En hér er alveg sérstakt eftiraunaákvæði, svo fjarlægt reglunum í hinum almennu eftirlaunalögum, sem frekast má verða. Á því bygði eg efa um það, hvort ákvæði hinna alm. eftirlaunalaga gætu komið til greina um þessi sérstöku eftirlaun. Hér er sagt, að ráðherra skuli ekki njóta ráðherraeftirlauna, ef hann hefir hærri eftirlaun fyrir þjónustu í öðru embætti. En hvað liggur nú í þessu? Ef hann tekur við sama embættinu aftur, hvernig fer þá um ráðherraeftirlaunin? Það er þetta, sem eg benti á að væri óljóst eftir frumvarpinu og þessvegna sýnist mér frumv. í heild sinni varhugavert. Því þætti mér réttast að fresta málinu til næsta þings. Þá verður væntanlega stjórnarskrárbreyting til meðferðar og ef þá skyldi verða ofan á, að ráðherrar verði þrír framvegis, þá býst eg við, að það þyrfti að setja alveg nýjar reglur um þetta efni. Gæti vel verið, að mönnum sýndist þá að afnema ráðherra-eftirlaunin alveg. Eg lét það í ljósi á síðasta þingi, að eg vildi heldur afnema þau, en að lækka þau niður í 1000 krónur. Því að ef ráðherra hefir á annað borð nokkur eftirlaun, þá sýnist mér 1000 kr. vera svo lítið, að vér getur varla verið þektir fyrir það.