04.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í B-deild Alþingistíðinda. (455)

22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands

Stefán Stefánsson Eg kom fram með br.till. á þgsk. 478 við 1. grein frumv. af þeim ástæðum, að mér virtist seinni hluti þeirrar gr. vera svo óljóst orðaður, að eigi væri við unandi.

Eg mintist á þetta mál við einn flutningsmann þess í neðri deild og leit hann svo á, að ráðherra ætti engin eftirlaun að fá sem slíkur, ef hann ætti tilkall til fullra 1000 kr. í eftirlaun fyrir embættisstörf sín önnur.

Kemur hér fram misrétti milli ráðherra þeirra, sem hafa verið embættismenn, með eftirlaunarétti, áður en þeir tóku við ráðherraembættinu, og hinna, sem ekki hafa verið embættismenn með eftirlaunarétti, er þeir komu í ráðherraembættið, hafa máske verið auðugir fésýslumenn og engu í tapað.

Eg vil skýra þetta með dæmi.

Maður er 10 ár í embætti, og á fyrir það tilkall til 1200 króna í eftirlaun. Nú verður hann ráðherra önnur 10 ár. En eftir þann tíma fær hann ekki nema 1200 krónur í eftirlaun alls. Mér virðist, að þetta nái ekki nokkurri átt, að maður sé sviftur eftirlaunum fyrir það, að hann nýtur trausts þingsins.

Embættislaus maður hefir aftur á móti sitt á því þurra. Hann fær sínar 1000 krónur, hve stuttan tíma sem hann hefir verið ráðherra.

Eg vona að háttvirt deild samþykki þessa breytingartillögu mína. Það er réttlátt, að hinn sem lætur af ráðherrastarfi fái 1000 króna eftirlaun að öðrum eftirlaunum óskerðum, sem hann kann að hafa átt lögmælt tilkall til.