04.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (456)
22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Gunnar Ólafsson:
Það er dálítið einkennilegt, að þegar eftirlaun eru rædd í þessari deild, þá virðist sem það sé mönnum viðkvæmt mál, og rísa alt af einhverjir upp til að gerast málsvarar þess. Og þó allir viti, að þjóðin heimtar óaflátanlega afnám eftirlauna. Nærri hver einasti þingmálafundur á öllu landinu ber þetta mál fram og hér gefst tækifæri til þess að verða við ósk þjóðarinnar.
Ekki hefir verið sýnt fram á með einu orði, að hér sé um rangláta kröfu að ræða eða það, að rétt sé að hafa ráðherraeftirlaunin há. Það eru heldur ekki þjóðkjörnu fulltrúarnir, sem halda hér í eftirlaunin, heldur hinir konungkjörnu. Það er eins og þeir skoði sig ekki fulltrúa þjóðarinnar, heldur fulltrúa embættisvaldsins eða eftirlaunanna.
(Lárus H.Bjarnason: Hreinasta bull).
Þetta er viðkvæðið hjá háttv. 5. kgk.; hann kann þvi illa sem von er, að hér sé bent á, hversu þessir menn misskilja stöðu sína á þingi.
Ef vandræði væru með ráðherra, væri öðru máli að gegna, en meðan nóg er til af þeim í voru landi er engin ástæða til að taka tillit til neinna kvartana.
Þeim þykir sárt, ef embættismaður verður ráðherra og missir einhvers í af eftirlaunum og telja hann rangindum beittan. En hvaða rangindi eru það, þar sem hann veit fyrirfram, að hverju hann gengur, veit það að hann fær ekki sérstök eftirlaun fyrir ráðherrastarfið.
Mér líkar vel frumvarpið, eins og það kemur frá háttv. neðri deild og finst mér ekkert á móti, að ráðherra séu ákveðin ofurlítil eftirlaun eða ef hann á ekki tilkall til hærri eftirlauna annars, svo að hann sé ekki alveg rekinn út á gaddinn eins og kallað er.
En það er ekki rétt, að hafa þau hærri en hér er farið fram á, einkum þar sem búast má við, að ráðherrum verði fjölgað og byrðin því meiri.
Háttvirtum 4. konungkjörna þótti óviðfeldið, að konungur skyldi ekki mega ákveða þessi laun framvegis. En getur konungur verið bærari til að ákveða launin heldur en þingið? Eða verður það í raun og veru ekki ráðherra sjálfur, sem þá ákveður sér launin? Jú, konungur ákveður þau eftir tillögum hans.
Þar sem breytingartillagan fer fram á „alt að“ 2000 kr., þá er hér aðeins um yfirskin að ræða. Það má telja víst að hámarkið verður altaf notað og því þá ekki að láta standa 2000 krónur og sleppa þessari krókaleið.
Að endingu vil eg geta þess, að eg álít frumvarpið aðgengilegt eins og það kom hingað til deildarinnar og greiði atkvæði móti öllum breytingartillögum og vona eg, að meiri hluti deildarmanna verði mér hér samtaka.