04.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (463)
22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Kristinn Daníelsson:
Eins og hv. þm. Strandamanna tók fram, þótti það orka nokkurs tvímælis, hvernig reikna skyldi eftirlaunin.
Í fyrsta lagi það, að launin gætu hækkað helzti mikið, en hitt það, að ekki væri gott, að embættismenn biðu beinan fjárhagslegan halla af því, að takast á hendur ráðherraembætti. Ýmsir hér í hinni háttv. deild hafa lagt höfuð sín í bleyti til þess að reyna að ráða bætur á þessum annmörkum og eg hefi líka gert tilraun til þess, og hygg eg, að sú tilraun fari einna næst því, sem tilgangurinn var með frumvarpinu. Fyrst vil eg því leyfa mér að nefna brtill. á þskj. 470, frá hv. 4. kkj. sem fer fram á, að 1000 krónurnar hækki upp í 2000. Hækkun þessi er þá líklega það eina tvímæli, sem sú breytingartill., tekur af í máli þessu.
Þá er aftur brtill. á þskj. 478.
Tilgangur frumvarpsins er, að ráðherra hafi eftirlaun og séu þau aldrei minni en 1000 krónur.
Eg sé ekki betur en að með þessu frumvarpi sé gert misrétti, milli þeirra, sem verið hafa í embætti áður en þeir tóku að sér ráðherraembættið og hinna, sem ekki voru áður í embætti. Breytingartillaga okkar fer fram á, að ráðherra haldi þeim eftirlaunum, sem hann átti eftir fyrra embætti og svo enginn misskilningur kæmist að, er bætt við, að þau ár, sem hann var ráðherra skuli ekki talin við útreikning eftirlaunanna, en aftur fái hann að uppbót 100 krónur fyrir hvert ár, sem hann er í ráðherrastöðu.
Eins og háttvirtur þingmaður Strandamanna tók fram, eru eftirlaunin ? launanna og 20 kr. fyrir hvert embættisár. Ráðherra myndi þá samkvæmt frumvarpinu missa þessar 20 krónur, en til þess að bæta úr þessu höfum við ætlað honum 100 krónur á ári, svo að ef hann yrði í embætti 10 ár, hefði hann fengið 1000 kr. auk sinna fyrri eftirlauna.
En þar sem menn segja, að þetta geti fælt hæfa menn frá að taka embættið, þá gæti það orðið, hvernig sem um er búið.
Annars tek eg þakksamlega öllum leiðbeiningum í þessu efni.