04.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (467)
22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Jósef Björnsson:
Hér hefir það mest verið fundið að frumvarpinu frá háttvirtri neðri deild, hve erfitt væri að reikna út eftirlaunin eftir því.
Þetta gat meiri hluti nefndarinnar ekki álitið hættulegt og fyrir hans hönd verð eg að lýsa því yfir að hann sér ekki, að nein hætta sé að samþykkja frumvarpið óbreytt, þótt háttv. þingm. Strandam. og fleiri háttv. þm. líti svo á. Það er ekki heldur ástæða til að leggja svo mikla áherzlu á að enginn fáist til þess að verða ráðherra, ef eftirlaun verða ekki tiltölulega há.
Breytingartillagan á þingskjali 470 virðist mér óaðgengileg, þar sem þar er um tiltölulega litla lækkun að ræða.
En þá eru brtill. á þingskjölum 478 og 507. Mismunurinn á þessum tveim brtill. er ekki svo sérlega mikill, þegar öllu er á botninn hvolft.
Eftir breytingartillögu á þingskjali 507 fær ráðherra sömu eftirlaun eftir 10 ára þjónustu, eins og eftir hinni, sem sé eftirlaun þau, sem hann átti rétt til, áður hann varð ráðherra, ef hann var embættismaður, og að auki 100 krónur fyrir hvert ár, er hann var ráðherra. En eftir breytingartillögu á þingskjali 478 fær hann þau eftirlaun, sem hann áður átti rétt til, að viðbættum þúsund krónum á ári.
Munurinn er því enginn, ef ráðherrann hefir verið 10 ár í ráðherrastöðu, en getur orðið 900 kr. hæst, sé hann aðeins eitt ár ráðherra, sem sjaldan eða aldrei mundi koma fyrir. Eftir því hve lengi ráðherra situr má því gera ráð fyrir mismun, er alloft yrði eigi nema 200 — 400 kr. og hæst mundi ná í 800 kr.
Eg játa að eg álít ekki rétt, að ráðherra, sem er nokkrar vikur eða nokkra daga í embætti fái há eftirlaun og það er réttlátt að tekið sé nokkuð tillit til þess, hve lengi hann er í embættinu og að því leyti er brtill. á þingskj. 507 bezt. En eg vil eftir atvikum greiða breytingartillögu á þskj. 478 atkvæði mitt, þó þar sé farið fram á hærri eftirlaun en í frumvarpinu eru ákveðin og í brt. á þskj. 507. Og ástæðan til þess, að eg geri það er að ná einhverju samkomulagi og bjarga málinu frá að falla, sem það ella mundi gera.