04.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands

Kristinn Daníelsson:

Háttv. þingm. Strandam. gat um eldri eftirlaunalög. Eg skal játa, að þeir sem hafa tekið við embætti á meðan þau lög giltu, hljóta að njóta eftirlauna eftir þeim meðan þeir lifa. En fyrir það verður ekki bygt, enda hverfa þeir úr sögunni smátt og smátt. Þá gat hann um, að embættismenn, sem tækju við ráðherrastöðu, væru útilokaðir frá að avancera í betra embætti. Á það get eg ekki lagt neina áherzlu. Það, að maðurinn hefði verið ráðherra, mundi einmitt öllu fremur styðja hann til þess, að geta avancerað í embættum.

Eg skal að eins stuttlega víkja að orðum háttv. framsm. Hann sagðist gera lítinn mun á þessum tveimur tillögum, á þskj. 478 og 507. En hann hefir víst ekki athugað þetta vel. Það er sá mikli munur, að eftir till. á 478 fær ráðherra alt af 1000 kr. eftirlaun, hvort sem hann hefir verið ráðherra mörg eða fá ár. En eftir till. á 507 fær embættismaður, sem verður ráðherra, því að eins 1000 kr. ráðherraeftirlaun, að hann hafi verið 10 ár í ráðherrasæti. Þetta er mjög mikill munur. Það eru miklar líkur til þess, að sá sem hefir haldið ráðherrastöðu í 10 ár, sé vel verður þess að fá svo há eftirlaun, en aftur á móti hæpnari líkur til að maður, sem að eins hefir verið ráðherra eitt ár, eigi skilið svona mikla eftirlaunahækkun. Enda fengi hann eftir till. 507 að eins 100 kr. ráðherraeftirlaun, njóti hann annara eftirlauna fyrir embættisþjónustu. Með öðrum orðum, í þessu tilfelli væri munurinn 900 kr., það getur sem sé skakkað hátt upp í allri eftirlaunaupphæðinni eftir því hvort hann hefir verið langan eða skamman tíma ráðherra.