08.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (483)
81. mál, erfðafjárskattur
Ari Jónsson:
Eg vildi aðeins geta þess, að það er eitt atriði, sem stóð í eldri lögunum, sem eg sakna í þessu frumvarpi; það er það, að ef búið ekki nemur 200 kr., þá skuli ekkert erfðafjárgjald greiða af því. Þetta vildi eg biðja nefndina að athuga við 3. umræðu.