10.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (485)

81. mál, erfðafjárskattur

Framsögumaður (Steingrímur Jónsson):

Eftir bendingu við 2. umr. hefir nefndin komið fram með 3 breytingartillögur. Eg álít 1. breytingartillöguna í sjálfu sér ekki nauðsynlega, en sé hins vegar ekkert á móti því, að hún sé samþykt, því að hún skýrir greinina betur. Þessi 1. brtill. fer fram á, að skattur sé ekki krafinn af öðrum arfi en þeim, þar sem búinu er skift hér á landi. — 2. brtill. fer fram á, að hækkuð sé fjárhæð þeirra búa, er undanþegin eru erfðafjárskatti, úr 100 kr. upp í 200 kr. Nefndinni hefir þótt rétt að halda því lágmarki, sem nú er. Þá er 3. brtillagan við 7. gr. seinustu línu. Þar stendur nú, að fjárhæðina skuli margfalda með áratölunni, þó aldrei meira en með 25 árum. Háttv. 2. kgk. þm. (E. Br.) benti á það við 2. umr., að þetta væri of hátt og hefir nefndin athugað það og fallist á, að rétt væri að breyta þessu, sem hér er lagt til.

1. brtill. samþ. með 9 samhljóða. atkv.

2. " " " 10 " "

3. " " " 9 " "