01.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (487)

81. mál, erfðafjárskattur

Framsm. Steingrímur Jónsson:

Það hefir að eins ein breyting verið gerð á frv. í neðri deild, nfl. við 6. gr., að í stað 200 komi 100 kr. Reyndar áleit eg breytinguna spilla frumvarpinu til muna, en nefndin vill þó ekki tefja tímann með því að fara að breyta þessu aftur, og ræður því til að samþykkja frv. óbreytt.