05.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í B-deild Alþingistíðinda. (498)

130. mál, tollalög

Framsögumaður (Augúst Flygenring):

Eg þarf ekki að tala neitt um frumvarpið sjálft, en vildi að eins geta brtill. á þskj. 933. Eg tók það fram með nokkrum orðum við seinustu umræðu og gerði þá grein fyrir því, að full þörf væri á meiri hækkun á kaffi og sykri en hér er farið fram á. Þessu hefir ekki verið andmælt og engar tillögur hafa komið fram um, hvernig afla eigi landsjóði tekna. Það er stefna nefndarinnar, sem hún víkur ekki frá, að tollstofnarnir séu fáir og þeir látnir bera mikið, og að tollarnir séu lagðir á eyðsluvörur eða munaðarvörur, helzt á þær vörur, sem menn geta valið eftir vild sinni. Eins og kunnugt er, hefir einum tollstofninum, vínfangatollinum, verið kippt burtu og lá þá ekkert beinna við, en að flytja þann toll, sem goldinn var af vínum, yfir á kaffi og sykur. Það er reynsla fyrir því, að þessir tollar hafa gefist mjög vel. Eg efast um, að nokkur skattur hér á landi komi betur niður, þessir tollar íþyngja mönnum minst. Þetta er margfalt betra en að dreifa skattinum á margar vörutegundir og láta fólk svo vera í þoku um þá skatta, sem það greiðir til opinberra þarfa. Með því fyrirkomulagi koma skattarnir misjafnar niður, af því að sárafáar vörulegundir eru það, sem allir neyta í svipuðum mæli. Skatturinn lendir þá á einstökum stéttum og verður í raun og veru tilfinnanlegri fyrir buddu almennings, því það er víst, að kaupmenn munu þá færa vöruna fram um talsvert meira en tollinn og sem maður kallar „runda tölurnar of víða“ til þess að ná sé vel niðri fyrir tollinum. Eg vona, að þessi skilningur nái meira og meira fylgi hjá þjóðinni.

Það er ekkert nýtt, sem við tillögumennirnir förum fram á. Það ekki ný stefna, sem eg held hér fram. Það er ekki annað en það, sem viðgengst hjá öllum siðuðum þjóðum, sem við höfum kynni af.

Þessi skattur er miklu hærri hjá þeim en oss, eins og eg sýndi fram á við síðustu umræðu.

Eg ætla ekki að þreyta deildina með langri ræðu. En eg varð að gera grein fyrir afstöðu meiri hluta nefndarinnar, en hún er sú, — og eg hef sýnt fram á það með fullum rökum, bæði nú og einkum við síðustu umræðu, — að þetta sé eina leiðin til að fylla það skarð, sem bannlögin hafa höggvið í landsjóð. En það er eins og það þýði ekki neitt að tala við menn um þetta, ekki af því, að þeir fallist ekki á þessar röksemdir, heldur af því, að þessi tillaga kemur fram á óhentugum tíma.

(Sigurður Stefánsson: Hví er tíminn óhentugur?)

Það er óhentugur tími af því, að nýjar kosningar eru í nánd. Eg hefi átt tal við marga þingmenn í dag af báðum flokkum eða öllum flokkum. Allir eða að minsta kosti flestir hafa þeir verið tillögunni mótfallnir. Þeim þykir rétt að bíða aukaþings 1912. Það er því ekki til neins að koma fram með þessa tillögu. Hún verður ekki samþykt á þinginu, fyrir því hef eg fengið fulla vissu. Af þessari ástæðu tekur nefndin tillöguna aftur, svo að málið verði ekki að þrætuepli milli deildanna og frumvarpið verði ekki að lögum fyrir þá sök.