01.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (506)

2. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Sigurður Stefánsson:

Mér virðist skylt að leita upplýsinga hjá hæstvirtum ráðherra, hvernig landsjóður geti látið af mörkum þetta fé.

Eg heyrði að ráðherra tók það fram í neðri deild, að fjárhagurinn væri ekki glæsilegur, og væri æskilegt að heyra, væntanlegri nefnd til leiðbeiningar, hvernig stjórnin ætlar sér að fá þetta fé, sem landsjóður á að leggja til sem beina fjárveiting, ef frumvarpið verður samþykt.

Eg álít að slíkar upplýsingar í byrjun málsins sé nauðsynlegar fyrir nefnd þá sem um það á að fjalla.

Mér þykir þetta mál of stórfelt til þess, að ekkert sé um það talað við fyrstu umræðu.