01.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 764 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
2. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað
Sigurður Hjörleifsson:
Eg tek undir með hv. þm. Ísafj. um það, að fullkomin ástæða sé til að ræða þetta mál rækilega við 1. umr. Eg veit yfirleitt ekki, hvaða mál er ástæða til að tala um við 1. umr. ef ekki einmitt þetta mál, svo stórt og mikilsvert sem það er. Sömuleiðis verð eg að segja það, að mér finst framsaga þessa máls hefði getað verið betri og meiri en enn er orðið, þó að ekki séu nema 5/13 hlutar deildarinnar Reykvíkingar, eins og tekið hefir verið fram! Það sem fyrst er á að líta er að mínu áliti, hvort hér sé um arðvænlegt fyrirtæki fyrir kaupstaðinn að ræða, eða ekki og þá hversu arðvænlegt. Hér hefir ekkert komið fram af hálfu þeirra manna, er mælt hafa með þessu máli, er hægt sé að byggja á í þessu efni. Það eitt hefir komið fram, að upphaflega var farið fram á að lagðar væru fram af landssjóði 800 þús. kr. til hafnargerðarinnar.
Af því lítur svo út sem Reykvíkingar treystist ekki til að leggja meir en helming kostnaðarins til fyrirtækisins. Ef svo er, virðist fyrirtækið ekki vera sem álitlegast; að minsta kosti hlýtur þetta að vekja grun um, að Reykvíkingar séu ekki eins trúaðir á fyrirtækið sem æskilegt væri. Þessi fjárupphæð er nú reyndar orðin helmingi minni í frv.; en á hverju er þörf? Um það vantar allar ábyggilegar skýrslur, og er það tilfinnanlegur galli á framsögu málsins. Slíkar skýrslur eru nauðsynlegar til þess, að þm. hafi eitthvað að byggja á, og eiga þær auðvitað að koma fram við 1. umr. málsins. Í upphafi var farið fram á, að landssjóður legði til 50% af kostnaðinum, síðan var sú upphæð færð niður í 25%. Til samskonar fyrirtækis á Akureyri lagði landssjóður aðeins 10% af kostnaðinum. Þegar þessar tölur eru bornar saman við fólksfjölda í Reykjavík og á Akureyri, þá var fyrirtækið, sem Akureyrarkaupstaður réðist í, ekki mikið minna en þetta er fyrir Reykjavík, og það lítur út fyrir, að það borgi sig þar. Eg tek það enn fram, að aðalatriði málsins er það, hve mikið Reykjavíkurbær er fær um að leggja fram til fyrirtækisins. Ef hann er ekki fær um að standa straum af því að öllu leyti. Um þetta atriði eiga þingm. heimting á að fá ábyggilegar skýrslur, því að undir því hlýtur það að miklu leyti að verða komið, hve stórt framlag landssjóðs á að vera Eg skal taka það fram, að eg mæli þetta ekki af neinum kala til frv. Verði sú reynd á, að hér sé um fjárhagslega skynsamlegt mál að ræða, þá á eg erfitt með að vera á móti því. Mér er vel við fyrirtækið, og er það einmitt af umhyggju fyrir því, að eg heimta ábyggilegar skýrslur því viðvíkjandi. Það getur alls ekki talist vottur um mótspyrnu móti neinu máli, að krefjast þess, að glögg grein sé gerð fyrir því.