01.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í B-deild Alþingistíðinda. (513)

2. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Lárus H. Bjarnason:

Það er engin ástæða til að halda framsöguræðu á þessu stigi málsins, þó að hv. þm. Ak. reyndi að sjóða upp eftir hv. þm. Ísafj. það sem hann var búinn að segja miklu betur á undan honum. Hv. þm. eiga að sjá það að hér er ekki um neitt eyðslufyrirtæki að ræða, heldur þarflegt gróðafyrirtæki, ekki aðeins fyrir Reykjavík, heldur alt landið. Höfn hér hlýtur að verða til þess að auka verzlun landsbúa, efla fiskiveiðarnar, og gera nærsveitum Reykjavíkur auðveldara að koma af sér afurðum sínum o. fl., en þá aukast um leið tekjur lands og bæjar og tekjur af auknum tollum, siglingargjöldum o. fl. Að heimta ábyrgðarskýrslur um fyrirtæki, sem er algerlega nýtt og óþekt hér á landi, nær ekki nokkurri átt. Raunar hefir bæjarstjórnin reynt að gera sér grein fyrir, hvernig fyrirtækinu mundi reiða af, og hefir hún komist að þeirri niðurstöðu, að bærinn mundi geta staðið straum af því, með því framlagi úr landssjóði, sem farið var fram á í byrjun. Sú greinargjörð bæjarstjórnarinnar er prentuð og hv. deildarmönnum mun verða gefinn kostur á að kynnast henni. En þó að það framlag fáist ekki úr landssjóði, sem upphaflega var farið fram á, er engan veginn sagt, að bærinn geti ekki komist af með minna. Hafnargjörðin var meðal annars ráðgjörð þannig, að skifta mátti henni í 2 parta á þann hátt, að annar parturinn einn gæti komið að miklu haldi. Annars situr það ekki á þeim nöfnunum, sem sitja báðir við sjálfgerðar hafnir, að anda kalt í móti þessu máli. Reykjavík stendur miklu ver að vígi en þeirra kaupstaðir og því hefir bærinn nýlega lagt nálægt miljón í gas og vatn, auk þess sem hann hefir nú höfnina á prjónunum. Annars get eg búist við, að hægt verði að seðja forvitni hv. þm. Ak., að svo miklu leyti sem hún er ekki óseðjanleg, þegar málið kemur úr nefnd og verður til 2. umr. Eg bjó mig ekki undir að tala langt mál við þessa umr. Eg bjóst við, að málið kæmist hljóðalaust í nefnd, og eg veit, að það kemst í nefnd, hvað sem þeir nafnarnir segja.