10.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (52)
87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Steingr. Jónsson:
Það er aðeins örstutt athugasemd. —
Háttv. þm. Vestur-Skaftf. sagði að hér væri maður til þess að semja fyrir hönd Marconifélagsins; þetta er ekki rétt; það stendur bara, að hann eigi að útskýra þau samningstilboð, sem félagið gerði eftir samráði við hans excellence ráðherrann.
Það liggur hér ekki fyrir neinn fastur, ábyggilegur samningsgrundvöllur, og sjálfur erindreki félagsins, hr. V. Finsen, hefir heldur ekki haldið því fram; hann segist bara eiga að vera viðriðinn samninga. En það eru engir samningar gerðir hér enn.
Það var líka annað atriði í ræðu hv. sama þm., sem eg vildi minnast á. Hann vildi véfengja það að Vestmanneyingar mundu fást til þess að taka þátt í kostnaði símalínunnar að einhverju leyti. En eg vil benda honum á, að fjárlaganefndin hafði til að byggja á tilboð um 8000 kr. framlag frá Eyjabúum, er lá fyrir síðasta þingi, og auk þess hefir hún átt tal við þingmann Vestmannaeyja um málið, og mun hann vera eins kunnugur vilja Vestmanneyinga og hv. þm. Vestur-Skaftfellinga.