18.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (520)
2. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað
Framsögumaður (Kr. Dan.):
Það er ekki til neins að deila við hv. þm Ísafj. um þetta mál. Eg viðurkenni stefnu hans og að sjálfsagt sé að fara gætilega í fjármálum, en hins vegar finst mér ekki, eg hafa unnið til þess að vera kallaður fjárglæframaður, eða maður, sem ekki hugsaði um fjárhag landsins. Ekki hefi eg heldur komið með þá kenningu, að skuldir landsins kæmu ekki þinginu við. Eg sagði aðeins, að sú skuld, sem hér er um að ræða, gæti engin áhrif haft á fjárhag landsins. Hún á að borgast á svo löngum tíma og með svo litlum afborgunum, að hún getur ekki gert neinar verulegar byltingar á fjárlögunum. Þó að tekjuhalli verði nokkur á einstöku fjárhagstímabilum, þá er enginn háski að því fyrir fjárhaginn einkum meðan við eigum þó þennan viðlagasjóð, því að hann er eign landsins eigi að síður, þó hann sé bundinn í lánum. Eins fjárhagstímabils tekjuhalli getur engin áhrif haft á fjárhag landsins í heild sinni. Hv. andmælandi taldi það bezta skilyrði fyrir lánstrausti landsins, að við sýndum, að við gætum hagað búskap okkar gætilega. En höfum við ekki einmitt gert þetta? Eg efast um, að nokkur þjóð hafi hagað sér jafn búmannlega og við. Hingað til höfum við ekki eytt neinu fé umfram tekjurnar, en safnað þó þessum viðlagasjóði.
Í sambandi við þetta vildi eg minnast á, að það eru ýms ráð til að auka tekjur landsjóðs. Það hefir verið bent á farmgjaldið og fleira. Það hafa að vísu komið fram mótmæli gegn því, en það sama mundi gilda um hvað, sem bent væri á, að það mundu koma fram mótmæli gegn því hverju um sig. Það stendur ekki á öðru en því, að stjórn og þing grípi til einhvers, sem fyrir hendi er og hægt er að ráðast í og þá skil eg ekki í öðru en að engin vandræði þurfi að verða fyrir dyrum fjárhagstímann næsta.
Þetta fyrirtæki vex mér ekki í augum. Þrátt fyrir alt og alt geri eg mér í hugarlund, að vel sé haldið á fjárhag landsins. Tekjuhallann, sem nýlega var gerður hér að stórri grýlu, er eg ekkert hræddur við. Sem sagt, fyrir eitt fjárhagstímabil getur ekki neinn háski vofað yfir, þar sem svo mörg ráð eru fyrir hendi að ráða bót á fjárhagnum í framtíðinni