10.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911

Gunnar Ólafsson:

Eg skal ekki flytja langt erindi, en mér þykir rétt að segja fáein orð.

(Lárus H. Bjarnason: Af hverju?)

Háttv. 6. kgkj. þm. hélt eða ætlaði að halda hjartnæma vandlætingarræðu um það, að menn snúist í þessu máli. En það getur oft verið rétt sjálfsagt og nauðsynlegt, að menn láti af skoðun sinni, þegar nýjar upplýsingar koma fram, og það því fremur þegar um mikilsvert mál er að ræða.

(Lárus H. Bjarnason: Það eru tveir menn, sem hlaupið hafa frá nafnakalli.)

Eg sé ekki ástæðu til að ýfa skap hins háttv. 5. kgkj. (L. H. Bj.) Það er ef til vill ekki gustuk, þar sem honum er svo hætt við að brjóta þingsköpin, sem raun hefir á orðið. Eg hefði í sjálfu sér getað verið með stofnun háskóla nú. Hún er eðlileg afleiðing af lögunum frá 1909. Það er sjálfsagt, að slíkt verður að gera. En þegar þess er gætt, hvernig þetta verður gert og hvernig það að réttu lagi á að vera, og þegar líka er litið til hinnar vesölu aðferðar, sem beitt er til að koma máli þessu áfram, þá er ekki óeðlilegt, þótt það renni á mann tvær grímur og menn hallist að því að fresta málinu. Það er ekki satt, að eg sé á móti því, að háskóli komist hér einhverntíma á stofn, þegar fært er.

(L. H. Bj.: Því trúir enginn.)

Forgöngumenn þessa máls sækja þetta mál með allskonar brögðum, sem eg ekki vil nefna hér, og þá auðvitað af vorkunsemi við háttv. 5. kgkj. Þeir segja, að sóma landsins sé hætta búin, ef hann er ekki stofnaður einmitt nú. Samt er ekkert húsnæði til handa háskólanum. Hér liggur ekkert annað fyrir en veita fé til þess, að hægt sé að segja, að háskólinn sé kominn á stofn. Hér er í rauninni ekki farið fram á annað en launa þessa væntanlegu prófessora. Það verður að gæta þess, að hér þarf miklu meira fé. Ef flytjendur þessa máls væru í raun og veru hygnir menn, mundu þeir hafa farið öðru vísi að. Þá hefðu þeir ekki byrjað á neglunni, heldur á skipinu sjálfu, og byrjað á byggingu hússins. Það fékst ekki, að þingtíminn væri færður, svo að háskólinn gæti fengið þar rúm. Það er því ekkert hús til, sem hugsanlegt er um, að væntanlegur háskóli geti starfað í. Forgöngumenn þessa máls hefðu átt að byrja á því að berjast fyrir byggingu háskólahúss, og hefði sú bygging getað staðið yfir eitt eða tvö fjárhagstímabil. Það hefði verið skynsamlegra að fara svona að, heldur en að berjast fyrir málinu með þeim hætti, sem nú er gert. Það var háttv. 6. kgkj. þm. (St. St.), sem sagðist mótmæla því, að standa uppi sem viðundur. Það er auðvitað sjálfsagt, að mótmæla slíku. Eg ætlast ekki til, að hann geri það, þótt eg geti ekki ábyrgst neitt um það.

Eg skal svo ekki þreyta hv. þingdeildarmenn á að tala meira um þetta mál. Atkvæði mitt byggist á því, að neðri deild hefir neitað að veita fé til þessarar stofnunar, og þegar ekki er hægt að fá fé nema til þriggja mánaða, álít eg, að það geti ekki átt sér stað, að háskólinn taki til starfa að eins um þriggja mánaða tíma.