15.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (541)
45. mál, stofnun lagaskóla á Íslandi
Sigurður Stefánsson:
Eg hefði getað fallist á frumv. þetta eins og það var flutt í fyrstu í neðri deild, af þeim ástæðum, sem háttv. 5. kngk. þm. tók fram. Það mælir mikið með því að lengja frestinn um 1½ ár, en þegar farið er fram á að lengja hann um 3 ár, er alt öðru máli að gegna. Eg sé enga ástæðu til að lengja frestinn svo mikið. Úr því að verið er að kosta fé til þess að koma slíkum mentastofnunum sem lagaskólanum á fót, þá lít eg svo á, að löggjafarvaldið verði að gera sitt til þess, að þær blómgist sem bezt, og hlynna að þeim ekki að eins með fjárframlögum, heldur einnig á þann veg, að gera rétt þeirra sem beztan gagnvart útlendum stofnunum, svo þær verði ekki undir í samkepninni. Og eg get því síður verið með því að lengja til muna þennann frest og fjölga þannig embættisgengnum lögfræðingum frá Hafnarháskóla, þar sem jafnvel svo góður lögfræðingur sem háttv. 5. kgk. þm., segist sáralítið hafa þekt íslenzk lög, þegar hann kom frá námi í Kaupmannahöfn. Þegar svona er ástatt um kunnáttu Hafnarkandídata í íslenzkum lögum, þá sé eg enga ástæðu til að fjölga mikið embættisgengnum lögfræðingum þaðan. Þess vegna mun eg verða með því að stytta þennan 3 ára frest um 1½ ár og láta þannig sitja við það, sem upphaflega var farið fram á í n. d.
Háttv. 5 kgk. þm. gat um, að það gæti komið til greina, að lengja frestinn ekki frá því sem nú er, en gefa aftur á móti heimild til að veita einstökum mönnum undanþágu eftir meðmælum lagaskólakennaranna, þegar kringumstæður þykja mæla með því. Mér blandast ekki hugur um það, að mæla eindregið móti þessari uppástungu. Eg efast ekki um, að núverandi lagaskólastjóri mundi ekki misbrúka slíka heimild, en það er engin trygging fyrir því, að hún kynni ekki að verða misbrúkuð í framtíðinni. Það gæti vel farið svo, að hreinum og beinum slæpingum væri veitt slík undanþága, og það væri verulega illa farið. Eg get því nú þegar lýst því yfir, að eg verð algerlega mótfallinn því, ef væntanleg nefnd skyldi komast að þessari niðurstöðu, — að öðru leyti finst mér hreinn óþarfi að setja nefnd í þetta mál. Það má vel stytta frestinn með einfaldri breytingu, tillögu við 2. umr. málsins.