24.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (577)
89. mál, bygging jarða og ábúð
Jósef Björnsson:
Þetta frumvarp, sem hér liggur fyrir, er ekki langt, en eigi að síður er það all-innihaldsríkt.
Efninu má skifta í 4 kafla.
Fyrsti efniskafli er um endurgjald, sem leiguliði á að fá fyrir unnar jarðabætur.
Annar kafli um hluttöku landsdrottna í byggingarkostnaði bæjarhúsa.
Þriðji kafli um afnám innstæðu kúgilda, og loks fjórði kafli um skifting á landi til afnota og eignar.
Flest þessi atriði hafa mjög víðtæka þýðingu fyrir landbúnaðinn. En með því að nefndarálitið sýnir glögglega, hvað hér er farið fram á, þá skal eg vera svo stuttorður sem unt er. Eins og sjá má af 1. gr. frumvarpsins, þá er ætlast til að leiguliðar fái af landsdrottni kr. 1,50 aura fyrir hvert dagsverk þeirra jarðabóta, sem ekki eru áskildar í byggingarskilmálum og styrkhæfar þykja og til fullra nytja hafa komið, þó svo, að ekki þarf landsdrottinn að greiða gjald þetta eftir að leiguliði hefir notið ávaxta verka sinna um 10 ára bil eða lengur; en gjaldið hækkar að ? hluta fyrir hvert ábúðarár, að undanteknu fvrsta árinu, frá því að jarðabótin var unnin. Að því er snertir ákvæðið í 20 gr. laganna frá 12 jan. 1884 um bygging og úttekt jarða, er það að segja, að sú borgun, sem þar er ákveðin, er engu minni, heldur öllu rífari, en hér er farið fram á. Hún getur orðið 12 sinnum hærri en sem svarar varanlegri árlegri afgjaldshækkun af jörðinni fyrir jarðabótina, eftir því sem úttektarmenn meta slíka afgjaldshækkun.
En til þess að leiguliði geti fengið þetta endurgjald, eftir núgildandi lögum, þarf hann fyrst að hafa reynt samninga við landsdrottinn þar næst að fá tvo óvilhalla menn til þess á sinn kostnað að meta jarðabótina, hvort tilvinnandi muni að gera hana, hvað hún muni kosta og hve mikið varanlegt eftirgjald geti hækkað. Að þessu loknu skal hann enn bjóða landsdrottni að gera jarðabótina. Vilji hann það ekki, þá má leiguliðiun framkvæma verkið. Og hafi leiguliði eftir þennan undirbúning gert jarðabótina einn, fær hann við burtför sína af jörðunni 12 sinnum hærra endurgjald en afgjaldshækkunin fyrir hana nemur árlega. Eins og gengið hefir til undanfarið hafa leiguliðar átt erfitt með að ná þessu endurgjaldi enda vandmetið, hvað jarðarafgjaldið skuli hækka fyrir jarðabótina. Nefndin telur ákvæði frv. um þetta til mikilla bóta því að þau ákveða leiguliða fast gjald fyrir hvert dagsverk, sem hann hefir unnið á jörðinni, þótt borgunin 1,50 kr. sé að vísu lítil. Þess vegna mælir nefndin með því, að þessi ákvæði frumvarpsins verði samþykt, og 1. gr. þess látin halda sér með þeirri breytingu einni, að tölunni 10 verði breytt í 11. En þá breytingu ber reyndar að eins að skoða sem leiðrétting prentvillu, því fyrst svo er ákveðið, að fyrsta ár skuli ekki teljast með til frádráttar á gjaldinu, en síðan árlega ?, þá getur því ekki verið lokið að fullu á minna en 11 árum. Nefndin játar að vísu, þrátt fyrir þessa tillögu sína, að þannig lagað ákveðið endurgjald fyrir hvert ákveðið dagsverk unninna jarðabóta, hverjar helst sem þær eru, geti ekki verið réttlátt. Sumar jarðabætur eru þess eðlis, þó þarfar séu og góðar, að þær borga sig seint, svo að 11 ára tími er of stuttur, en aðrar borga sig aftur á móti miklu fljótar, jafnvel á örfáum árum.
Til dæmis má taka, að þar sem þægilegt er að koma á vatnsveitingum, borga þær sig fljótt. En ætti að taka fullt tillit til þessara hluta og miða endurgjaldið til leiguliða við þá, það þyrfti að semja um þetta nákvæm lög, sem bygð væru á fagþekkingu og yrðu þau að taka til greina mjög mörg atriði, ef nokkur veruleg sanngirni ætti að fást með þeim. Þetta finst nefndinni ástæða til að benda á. Í annari og þriðju grein frumvarpsins er farið fram á það, að leitt sé í lög, að leiguliðar eigi heimtingu á að landsdrottinn leggi fram 8/4 af kostnaði við byggingu jarðarhúsa. Enda þótt leiguliði eigi að flytja að það byggingarefni, sem jörðin sjálf leggur til, geta þetta þó orðið heilmikil útgjöld fyrir landsdrottinn, og kemur því til álita, hvort þessi útgjöld eru sanngjörn og koma vel niður eða ekki.
Því verður ekki neitað, að það er eðlilegt, að landsdrottinn leggi fé til umbóta jörð sinni. En þó svo sé, þá verður að líta á hitt líka, hvort framlag þetta komi ekki niður þannig, að það verði ósanngjarnt í framkvæmdinni.
Ef þetta er athugað nánar, má sjá, að framlagið til bygginganna getur komið mjög illa við fyrir landsdrottinn. Það gæti orðið hart fyrir hann að verða að leggja fram 8/4 hluta kostnaðarins á þann hátt, sem frumv. ætlast til.
Það er vitanlegt, að margir jarðareigendur hér á landi eru ekki svo efnum búnir, að þeir geti lagt fram sér að meinalausu stórar fjárupphæðir í einu.
En hafi leiguliði rétt til að krefjast þess, má búast við, að hann í mörgum tilfellum héldi réttinum fram og krefði þess fjár, er landsdrottinn eigi gæti látið af hendi rakna, því það verður að játast, að þó byggingu bæjarhúsa hafi farið mjög fram á síðustu áratugum, þá vantar samt mikið á, að þau séu enn í lagi allvíða. Kröfur um framlagið væri því margvíða mjög svo eðlilegar, og gætu stundum numið miklu fé.
Nefndin lítur nú svo á, að mörgum landsdrottni væri eða fyndist sér vera ofvaxið að leggja fram þenna byggingarkostnað og fyndist hann vera neyddur til að selja jörðina. Þetta er að visu ekkert athugavert, ef hægt væri þá að selja jörðina sæmilegu verði, en það eru ekki vanalega margir lysthafendur að jörðum, sem eru í lífsátíðarábúð eða annari fastri ábúð um lengri tíma; það gæti svo farið, að eini kaupandinn, sem fengist, væri leiguliðinn sjálfur og yrði honum þá að nokkru gefið sjálfdæmi um verðið. En eins og bent er til í nefndarálitinu, gæti þetta orðið tilefni til óhæfilega lítils verðs á jörðinni og haft áhrif til lækkunar á verði jarða í landinu.
Enn þó leiguliðum sé gefinn þessi réttur á hendur landsdrottni, þá er samt byrðinni ekki létt af þeim. Þeir bera fjórða hluta kostnaðarins og að auki flutning á því efni, er jörðin sjálf á til.
Og þegar ábúðartíminn er stuttur, er því rétti leiguliða ekki borgið. Af þessum sökum og fleirum leggur nefndin til, að 2. og 3. gr frumv. verði ekki samþyktar eins og þær liggja fyrir, en í þeirra stað komi tvær aðrar greinar, sem eru bygðar á nokkuð öðrum grundvelli.
Þær tillögur nefndarinnar eru bygðar á því, að hún viðurkennir rétt, að landsdrottnar byggi upp hin nauðsynlegu bæjarhús á jörðinni á sinn kostnað, en hún álítur nauðsynlegt, að þetta geti fram farið smám sama eða að nokkru leyti eftir hans eigin geðþótta, sem sé þegar ábúendaskifti verða. Að jafnaði getur landsdrottinn ráðið miklu um, hvenær þau verða, og yrði þá landsskuldin einnig ákveðin með samkomulagi við hinn nýja ábúanda um leið og byggingarkostnaðurinn væri lagður fram.
Þetta eru þá kostirnir:
1. Leiguliði losnar við allan kostnað við byggingu bæjarhúsa.
2. Þó að landsdrottinn leggi hér fram allan kostnaðinn, lítur nefndin þó svo á, að það sé þægilegra fyrir hann að öllum jafnaði að gera það en að leggja fram 3/4 eftir frumvarpinu, ef farin er sú leið, sem nefndin leggur til, og honum er allmikið í sjálfsvald sett, hvenær hann byggir.
3. Ef landsdrottinn getur ekki bygt bæjarhúsin upp, þá er í þessu tilfelli jörðin laus til ábúðar og getur hann því fengið fleiri lysthafendur að henni en ef hún hefði verið í fastri ábúð, og fær nú betra verð fyrir hana.
4. Sé svo litið á þann, sem flestar jarðirnar á, sem er landssjóður, þá er ólíku léttara fyrir hann að byggja þannig upp jarðir sínar smám saman, jafnóðum og þær losna úr ábúð, en ef hann þyrfti að byggja upp strax bæjarhúsin á öllum fjölda þeirra. Það var skylda landsdrottna til forna að húsa jarðir sínar, og munu þær þá hafa verið sæmilega húsaðar. En er hagur almennings versnaði og deyfð og framtaksleysi fór í vöxt, þá hefir skyldan smám saman smeygst yfir á leiguliðann. Það er því eðlilegt, er hagur manna batnar, að þá komist þetta aftur í hið forna far.
Það virðist líka rétt að landsdrottinn eigi byggingar á jörð sinni, og þá kemur sú spurning fram, hve langt á þá að fara í fjárkröfuskyldu á hendur landsdrottni til byggingar bæjarhúsa, eða með öðrum orðum, hve mikla upphæð eigi að ákveða minsta í þessu efni.
Hér er um mikið vandamál að ræða og hefir nefndin lagt til, að ekki verði meira krafist af landsdrottni, vilji hann ekki sjálfur leggja meira fram, en áttfalt afgjald jarðarinnar eftir meðaltali 5 síðustu árin.
Búast má við, að um það verði skiftar skoðanir, hvort þetta sé heppilegt takmark, sem nefndin hefir sett. En til skýringar því, hvernig þetta kæmi út skal eg taka dæmi.
Jörð er 20 hndr. að dýrleika og er goldið í landsskuld og leigu af henni 100 kr. Slík landsskuld er lág, en ekki óvanaleg með öllu, af jörð af þessari stærð, þó hún geti stundum verið töluvert hærri, jafnvel þrefalt hærri eða þar yfir.
Á þessari jörð gætu úttektarmenn ekki skyldað landsdrottinn til hærri borgunar til bæjarhúsa en 800 kr., og nefndin gat ekki litið öðruvísi á en að til þess að fá viðunanleg bæjarhús á 20 hndr. jörð, yrði með engu móti komist af með minna en 800 kr. En með þessari upphæð mætti þó gera þau viðunandi eftir áliti nefndarinnar og miklu betri en bæjarhús eru nú all-víða
Eg sé að einn háttvirtur deildarmaður hristir höfuðið yfir þessu og lít eg svo á, að honum þyki þetta of lágt (D.M: Já), en eg vil benda honum á, að hér er um lagaskyldu að ræða, sem ákveður lágmark en ekki hámark.
Nefndin efast ekki um, að sá, sem efni hefir, byggi svo traust og vel, að það geti verið til varanlegra bóta og láti sér ekki í augum vaxa, þó það kosti meira en lagaskylda er til.
Þá skal eg með fám orðum minnast á kúgildaákvæði frumv., þar sem leiguliða er heimilað að leysa til sín kúgildin, þegar hann óskar þess.
Við þetta atriði hefir nefndin ekkert að athuga og mælir með, að það verði samþ.; að eins leggur hún til að litlar orðabreytingar verði gerðar, sem sé þær, að í stað „tveggja dómkvaddra manna og óvilhallra“ komi: „úttektarmenn“.
Nefndinni virðist nægilegt, að úttektarmenn meti það, sem hér er um að ræða. Að hafa til þess dómkvadda menn er óþarflega vafningamikið.
Þá er 6. í gr. frumv., sem hefir í sér fólgin atriðin um skiftingu óskifts lands, bæði til afnota og til eignar og í sambandi við það girðingarskyldu. Að því, er snertir afnot þau, sem um er að ræða í greininni, þá eru í gildandi lögum til ákvæði um rétt til að fá skift túni og engjum, er um sameiginlegt land er að ræða. En það, sem hefir komið háttv. flutningsmönnum í neðri deild til að fara fram á breytinguna, er að sumstaðar stendur svo á, að í beitilöndum eru blettir, sem vafi er á um, hvar telja skal til engja eða ekki. En af því leiðir þá aftur vafa um það, hvort hægt sé að krefjast skifta á slíkum slægjum. Þetta hefir valdið óánægju, og eðlilegt virðist það vera, að skiftingin sé heimiluð.
Það er ekki full ljóst eftir orðalagi greinarinnar, hvort vakað hefir fyrir flutningsmönnum, að skiftin skyldu vera afnotaskifti einungis eða jafnframt eignaskifti, en líklega eru það þó einnig eignaskifti, sem ákvæðin eiga að ná til, og hefir nefndin ástæðu til að ætla, að svo sé, af samtali, sem hún átti við tvo hv. neðri deildar þingm. um þetta. Nefndinni hefir því af þeirri ástæðu og öðrum fleirum fundist rétt að taka eignaskifta ákvæði upp í breytingartill. sínar.
Nefndin leggur þessvegna til, að í staðinn fyrir nokkurn hluta þessarar greinar komi þrjár greinar, sem að sumu eiga að eins við afnotaskifti, en að öðru fullkomin eignaskifti.
Að því, er snertir þörf á eignaskifti í sameiginlegu landi, skal bent á, að þegar þarf að taka land til ræktunar eftir ósk eins sameigandans, getur það verið afar ósanngjarnt, að hægt sé síðar — eftir að búið er að rækta landið — að heimta skifti á því til eignar, og eins getur það valdið ágreiningi, hvaða part hver hlutaðeigandi megi taka til ræktunar.
Nefndinni fanst rétt, að þegar parti er skift úr til ræktunar, þá sé það til eignar, þar sem það er mjög ósanngjarnt, að hægt sé að taka þetta land af þeim, sem ræktað hafa það, en eignarskifti fara fram síðar, því auðsætt er, að mestur hluti af verðmæti landsins liggur oft í þeim kostnaði, sem lagður var fram til ræktunarinnar. Og þótt svo kynni að verða litið á af sumum, að eftir núgildandi lögum sé ekki hætt við að þessi réttmæta eign yrði tekin af ræktanda, þá eru þó engin lagaákvæði til, sem hindra það að svo geti orðið, og þetta þarf að koma í veg fyrir. Nefndin vill og ekki aðeins leggja til að eignarskifta geti orðið krafist á slíkum smáblettum. En hún vill, að heimilt sé, að krefjast eignarskifta fullra á öllu því landi, sem sérbýli ber. Eftir því, sem búnaði fer fram og ræktun landsins eykst, verður þetta nauðsynlegra, og styður að betri meðferð og meiri ræktun landsins.
Í sambandi við útskifti til eignar hefir nefndin lagt til, að bætt verði við nýju ákvæði um það, sé landi skift, sem sett er að veði, þá hafi veðhafi rétt til að heimta yfirmat í tvö ár frá því, að honum eru tilkynt skiftin. Þetta virðist ekki mikils vert atriði, en það er hugsanlegt, að þegar sameiginlegu landi er skift, og einhver þeirra, sem hlut á að máli, stendur mjög tæpt, að hann hugsi sem svo: Landið verður líklega tekið af mér, hvort sem er, og þá get eg eins vel látið meðeigendur mína fá sinn hluta vel útskiftan. Þetta gæti orðið til þess, að skiftingin yrði ósanngjörn til skaða fyrir veðhafa, ef einhver eigandi skyldi fara um koll. Til þess að engin freisting geti átt sér stað í þessa átt, þá leggur nefndin til, að þetta ákvæði verði sett inn í frumvarpið.
Þá leggur nefndin til að taka upp ný girðingarákvæðið, sem verði 9. og 10. gr. Þær girðingar, sem er um að ræða, eru girðingar á landamerkjum, og get eg verið fáorður um þetta atriði. Eg skal að eins benda á, að girðingar eru óneitanlega einhver hin nytsamlegasta umbót í búnaði, sem hægt er að gera. Þær spara fyrst og fremst mikla vinnu, og í öðru lagi eru afnot landsins miklu betri, ef það er girt. Við sjáum merki þess enn í dag, að á meðan hagur landsins var góður, þá hafa víða verið öflugar girðingar. En þegar hagur þjóðarinnar stóð illa, þá var ekkert girt. Svo þegar viðreisnartíminn byrjaði á 18. og 19. öld, þá er aftur farið að girða, og síðan hafa girðingar farið vaxandi. En það, sem aðallega stendur í vegi fyrir girðum á síðari árum, er einmitt þetta, að engin skylda hvílir á eiganda jarðar að girða á móts við nágranna sína. Þetta hindrar, að löndin verði afgirt. Af því að þessa skyldu vantar, hafa landaeignir ekki verið girtar, nema á örfáum stöðum; og það er heldur engin von. Þess vegna er nauðsynlegt að fá lagaákæði um það, að landeigandi geti orðið skyldaður um að taka þátt í kostnaði við girðingu landamerkja. Um þá skyldu hljóðar 9., 10. og 11. gr. Í þessu efni vildi nefndin þó ekki fara lengra en að skylda nái að eins til gripheldra vírgirðinga, sem eru ódýrastar. Nefndin vill enn fremur að skoðunarmenn jarðabóta og úttektamenn skoði girðingarstæðið, og geri áætlun um kostnað við girðinguna. Þegar því er lokið, ætlast nefndin til, að sá, sem upptökin hefir að girðingunni, leiti samkomulags við þann, sem land á á móti. En fáist ekki samkomulag, þá sé honum heimilt að girða samt, og skuli eiga kröfu til helmings af girðingarkostnaðinum eftir þeirri áætlun, sem gerð var. Þó að girðingin verði dýrari en áætlað var, fær hann ekki meira fyrir því. Þegar girðing er komin á, sé henni skift milli þeirra, er hlut eiga að máli, og annast hver um sig um viðhald síns hluta, og vanræki annar viðhaldsskyldu sína, getur hinn látið gera við girðinguna á hans kostnað. Að því er snertir fjárframlag til girðingar, þá vill nefndin ekki fara lengra en svo, að heimila megi eins árs afborgun af jörðinni á hverjum fimm árum. Þó að fjárframlagið sé ekki meira í hvert sinn, þá mun þó mega koma upp girðingum allvíða með þessu móti, með því að í byrjun hvers fimm ára tímabils skapast ný krafa til jafnhárrar upphæðar, þar til girðingarkostnaðinum er lokið. Og flytst sú krafa yfir á nýjan eiganda jarðarinnar, ef eigendaskifti verða.
Eg skal svo ekki þreyta hv. deildarmenn á lengri ræðu. Að eins skal eg taka það fram, að nefndin álítur þetta stórþýðingarmikið mál, og að öll atriði frumvarpsins séu hvert í sínu lagi mikils verð. Nefndin álítur, að málið verði ekki látið falla niður, heldur tekið upp aftur og aftur, þar til það er til lykta leitt. En þrátt fyrir það lítur hún svo á, að hér sé margt, sem þarf að athuga sem allra bezt áður en það er afgert. Því leggur nefndin til, að frumvarpið verði að vísu afgreitt frá þessari deild, en ekki afgreitt til fullnaðar á þessu þingi, heldur eigi þjóðinni að gefast kostur á að athuga málið sem allra bezt. Þess vegna leggur nefndin til, að skjöl málsins verði send í alla hreppa landsins til athugunar og umsagnar, til þess að sem beztar upplýsingar fáist víðsvegar að áður en málið verður aftur til meðferðar á alþingi.