24.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (583)
89. mál, bygging jarða og ábúð
Framsögum. (Jósef Björnsson):
Eg ætla að svara ofurlitlu því, sem hv. þm. V.Skaftfellinga (G. Ól.) sagði. Hann er nú því miður genginn út úr salnum, svo að hann heyrir ekki til mín. En eg get samt ekki varist að geta þess, að hann hefir misskilið nefndina og framsögu þessa máls, ef hann heldur, að það hafi verið tilgangur nefndarinnar að koma í veg fyrir byggingar og endurbætur á hýbýlaskipun í landinu. Hann virðist halda, að það, sem hér er lágmarkið, sé sama sem hámark. Hann gengur að því sem vísu, að jarðeigandi mundi aldrei leggja fram meira fé til bygginga en hann er lagalega skyldur til. Nefndin lítur svo á, að þegar landsdrottinn hefir skyldu til að húsa jörðina í hvert skifti, sem þess er þörf, þá muni hann hugsa sig vel um, áður en hann fer að byggja húsin lélega. Þaðer að minsta kosti miklu betra fyrirkomulag en nú á sér stað, þar sem leiguliði fær oft ekkert fyrir byggingar, en landsdrottinn hefir smeygt af sér skyldum í því efni yfir á hann. Slíkt fyrirkomulag er skapað til að halda því við, að byggingar á leigujörðum séu í illu ástandi. Á slíkum jörðum er víða mjög illa ástatt í þessu efni. Eg efast um, að húsin séu mörg hundruð króna virði á þeim jörðum, sem er 50 kr. ársgjald af, eins og hv. þm. var að tala um. Yfir höfuð hefi eg ekki sannfærst um annað af ræðu hins hv. þm. V..Skf. (G. Ól.) en að hann hafi gersamlega misskilið nefndina.