21.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (601)

61. mál, verslunarlóðin í Vestmannaeyjum

Gunnar Ólafsson:

Það er rétt sem hæðstv. ráðherra tók fram. Eg hefi líka séð á frumvarpinu annan galla. Frumvarpið liggur hér fyrir eins og það kom frá háttv. neðri deild. Líklega er réttast að taka það út af dagskrá eins og hin tvö málin næst á undan. Það tefur hvort sem er ekki lengi fyrir, þegar það kemur á dagskrá aftur.