21.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (602)

61. mál, verslunarlóðin í Vestmannaeyjum

Ráðherra (Kr. J.) :

Það er nauðsynlegt að þeir, sem flytja frumvörp inn á þingið, undirbúi þau sem best, annars verður að setja nefnd í hvaða smámál sem er. Úr því háttv. þm. Vestur-Skaftfellinga hefir séð annan galla á frumvarpinu, þá virðist best, að hann taki að sér að laga frumvarpið, annars verður að skipa nefnd í málið.