23.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

61. mál, verslunarlóðin í Vestmannaeyjum

Gunnar Ólafsson:

Eins og háttv. deildarmenn muna, var þetta mál tekið út af dagskrá hér í deildinni um daginn, eftir bendingu frá hæðstv. ráðherra. En nú hefi eg komið fram með breytingartillögu, þar sem lagfært er þetta atriði, sem hæðstv. ráðherra benti á. Auk þess kem eg með breytingartillögu um merkin, því að þegar eg fór að athuga þau betur, sýndist mér þau rangt tilfærð eftir örnefnum. En eins og eg hefi breytt þeim hygg eg, að örnefni séu rétt tilfærð og stefnum rétt lýst, og vil leyfa mér að leggja til að breytingartillagan verði samþykt.