30.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 837 í B-deild Alþingistíðinda. (610)

109. mál, útflutningsgjald

Framsögum. (Sigurður Hjörleifsson):

Frumv. þetta var borið fram af hv. 3. kkg. þm. og mér. Það er örstutt, aðeins tvær línur, og er varla þörf á að halda langa ræðu um það. Nefndin, sem falið var að íhuga það, hefir nú lagt fram álit sitt, og er hún öll sammála um það. Í nefndarálitinu er gerð grein fyrir því, sem fyrir okkur flutningsmönnunum vakti. Það hefir verið bent á það, að Stjórnarráðið gæti komið því til leiðar, sem farið er fram á í frumv. án nokkurra lagaákvæða. Þetta er rétt að sumu leyti, en rangt að öðru. Það er rétt, að stjórnarráðið getur án nýrra lagaákvæða gert þá breytingu, að miða ekki úthlutun styrksins við útflutning síldar, eins og hingað til hefir verið gert. Úr því verður hreinasta misrétti, styrkurinn verður verðlaun fyrir að verzla með síld. En á hinn bóginn er ekki hægt án nýrra lagaákvæða að koma í veg fyrir það, að útlendir menn, sem hafa keypt sér borgarabréf eigi heimting á styrknum. En það er bersýnilega rangt, því að þeir eru að eins að nafninu til innlendir. Þeir dvelja hér að eins í 2—3 mánuði af árinu, og veiða á útlendum skipum og með útlendum mönnum. Þetta er ástæðan til að við flutningsmennirnir komum fram með þetta frumv., og vona eg að háttv. deild fallist á það.