21.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (646)
28. mál, sala kirkjujarða
Kristinn Daníelsson:
Eg get vel fallist á það, sem hv. 2. kgk. þm. sagði, að áliðið væri þingtímans og því varla tími til að skipa nefnd, en þá kysi eg fyrir mitt leyti heldur að málið væri látið bíða næsta þings, en felt nú á þessu þingi. En eg er honum ekki sammála um, að þetta sé óbrotið mál. Það getur verið, að það sé honum vel ljóst, og er það vafalaust ljósara en flestum öðrum. Eg hygg að hv. deildarmenn muni eiga erfitt með að átta sig vel á málinu, svona alveg óathuguðu í nefnd, að minsta kosti er langt frá því að mér sé það fyllilega ljóst. Mér þótti vænt um að heyra þau ummæli hæstv. ráðherra, að hann væri á móti sölu opinberra eigna, en þá skil eg ekki, hvernig hann getur verið þessu frv. meðmæltur. Mér finst vera ósamræmi í því. Hér í frv. er farið fram á að selja megi hjáleigur frá stærri jörðum, sem þær eru oft mjög nátengdar. Setninguna í frv. „enda séu gerð ummerki á túni, engjum og högum þegar matið fer fram“, get eg ekki skilið svo, að átt sé við ummerki, sem eigi að vera þegar matið fer fram og eigi að hafa verið gerð áður, heldur er hér aðeins skipað svo fyrir, að slík ummerki skuli gera um leið og salan fer fram. Margar þessar hjáleigur liggja alveg inn í túni eignarinnar. Auðvitað má mæla út úr túni, og hefir verið gert, en ef farið er að gera það takmarkalítið, þá er ekki séð, hvort ekki getur orðið stórskaði að.