01.05.1911
Sameinað þing: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (66)

87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg stóð ekki upp til þess að tala um þetta mál, sem mestar hafa orðið umræður um hér í þinginu.

Eg minnist þess, er eg var eitt sinn á ferð fyrir 20 árum, ásamt vini mínum með konum okkar; og kom okkur þá saman um, að það væri hreint og beint skilnaðarsök, ef konan gæfi manni sínum þrisvar í viku blautfisk til miðdegisverðar.

En hvað mundu menn þá segja um það, ef menn fengju 7 daga í viku blautfisk. En nú eru þessi fjáraukalög búin að vera til umræðu níu eða tíu sinnum á þessu þingi.

En eg bað um orðið aðallega til þess að minnast á eina tillögu, sem hér liggur fyrir. Eg er einn í þeirra tölu, sem álít hana greinilegt þingskapabrot. Það er ekki unt að koma till. að samkv. 30 gr. En eg sé veg til þess að koma henni að og þá beinlínis samkv. 52 gr. þingskapanna, ef ráðherra leyfir.