01.05.1911
Sameinað þing: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í B-deild Alþingistíðinda. (67)
87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Björn Kristjánsson:
Háttv. 2. þm. Sunnmýlinga kvaðst ekki hafa staðið upp til þess að ræða um þetta margþvælda loftskeytamál, og eg verð að vera honum alveg sammála um það, þótt málið verði rætt nú aftur á bak og áfram, þá muni ekkert nýtt koma fram í því. Það er nú komið í 30. þynningu, að því er það snertir hve oft hefir verið um það rætt.
Þá vil eg leyfa mér að víkja nokkrum orðum að ræðu hæstv. ráðherra; hann sagði, að öll skilyrði mundi bresta til þess að framfylgja þessu ákvæði nú á þessu fjárhagstímabili. En hvað skyldi vera í veginum. Nú fer hæstv. ráðh. mjög bráðlega til Danmerkur, og hygg eg honum mundi þá innan handar að undirbúa framkvæmd málsins eins og þörf krefur; og það er þá á hans ábyrgð, og honum að kenna, ef málið kemst ekki í framkvæmd, ef féð er veitt. Nú er þegar búið að búa svo í haginn fyrir stjórnina, að hún getur fengið lán til þess að koma verkinu í framkvæmd, ef henni þóknast, og hún er meira að segja beint skyldug til þess. Hann lagði, hæstv. ráðh., mikið upp úr því, að Vestmanneyingar vildu heldur vera sambandslausir en hafa loftskeytasamband. En eins og eg tók áður fram, við fyrri umræður, þá er ekki mikið leggjandi upp úr upp-„agiteruðum“ undirskriftum, og eg er alveg viss um það, að hefði nokkur viljað gefa sig til þess, þá hefði áreiðanlega mátt ná í eins marga eyjarbúa með loftskeytunum eins og á móti. Undirskriftunum þaðan er því ekki mark á takandi, þær stafa eingöngu af því, að þeim hefir ekki verið málið rétt flutt — leynt því sanna og rétta.
Hefðu þeir t. d. fengið að vita um stöðvarnar í Skaftafellssýslunum, mundu áreiðanlega eins margir hafa fengist með og móti. Á því leikur enginn vafi.
Það er ekki ætlast til þess, að loftskeytastöðvarnar verði opnar allan daginn. Það ætti að vera hægt að komast af með ódýrt fólk. Það þarf engan speking til að stýra loftskeytastöðvum. Erlendis eru uppgjafa skipstjórar oft fengnir til þess. Þeir eru mjög fljótir að læra það sem læra þarf til þess að geta veitt slíkum stöðvum forstöðu. Starfið er svo létt, að gamalmenni geta leyst það af hendi. Það er öðru máli að gegna um svona stöðvar heldur en þær stöðvar, þar sem reksturinn fer fram dag og nótt.
Þá er nú þessi dæmalausa röskun á símakerfinu, sem alt af er verið að tala um. En hvaða röskun er þetta? Hún er er sú, að skeytin eru sumpart send í síma, sumpart í loftinu. Skeytin ættu að geta komist á leið eins fyrir því, þótt þetta loftskeytasamband komist á. Röskunin er ekki önnur en sú, að símastjórnin fær minna að kaupa af áhöldum.
Þá gerði háttv. 4. kgk. þm. (Stgr. J.) áætlun um, hve ódýrt væri að koma á símasambandi milli Austfjarða og Hornafjarðar. Eg skal ekki þrátta mikið um þetta við hinn háttv. þm. En eg hygg að þetta samband, sem hér er farið fram á, verði ódýrara. Arðurinn af símalínu verður lítill í samanburði við kostnaðinn.
Þá tók hinn háttv. þm. það aftur fram, að tekjur af síma yrðu 3500 kr, af loftskeytum 2500 kr. Það er óþarfi að vera að þræta um þetta. Hvorki hann né eg getum neitt sagt um það með vissu. Hann sagði og í lok ræðu sinnar, að glöggar og greinilegar ástæður hefðu verið færðar fyrir því, að símasamband væri betra en loftskeytasamband. Það hafa að minsta kosti ekki verið færðar svo glöggar og greinilegar ástæður fyrir því, að það geti, að minsta kosti ekki verið vafamál, hvort betra sé. Eitt þykir mér líka undarlegt hjá hinum háttv. þingm. Hann vill hafa loftskeytastöð í Reykjavík, sem hafi samband við skip og jafnvel önnur lönd. Eitthvað á hún víst að kosta. En því má þá ekki nota hana til að koma á sambandi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja? Því þarf það endilega að vera sérstök stöð, sem hann vill hafa í Reykjavík? Hann talaði um, að þessi stöð ætti að vera í sambandi við Noreg, Grænland og Írland. Því undarlegra er það, að hann skuli vera því mótfallinn, að hún sé í sambandi við Vestmannaeyjar.
Að síðustu skal eg aftur minna á það, að einn hinn helzti af kaupmönnum í Vestmannaeyjum hefir lýst því yfir, að hann sjái ekkert í móti loftskeytasambandi og að það komi sér að sama haldi sem símasamband.