02.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 863 í B-deild Alþingistíðinda. (676)

114. mál, bankavaxtabréf

Ráðherra (Kr. J.):

Eins og hag landssjóðs, eða réttara sagt viðlagasjóðsins, er nú komið, þá mun hann ekki hafa handbært fé til að leggja fram tryggingarfé það, sem hér ræðir um; verði frumvarpið að lögum, verður að útvega þetta tryggingarfé (kgl. skuldabréf), og getur það orðið all-erfitt fyrir landssjóð. Hinsvegar getur bankinn takmarkað lánveitingar sínar úr veðdeild, ef hann á erfitt með að leggja fram tryggingarféð, en til þess þarf hann ekkert tillit að taka, ef hann getur heimtað það af landssjóði. Enda mun hann og eigi spara að gera það.

Annað mál kann það að vera, að nú sé svo komið hag Landsbankans, undir stjórn þeirri, er þar hefir verið síðasta árið, að bankinn, fyrir eintómt ólag, er kominn í fjárþröng, svo að hann þykist þurfa að leita á náðir landssjóðsins; eg býst nú við, að eg greiði atkvæði móti þessu frumv.; þykir eigi ástæða til að hlaupa á þennan veg undir Landsbankann.