02.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í B-deild Alþingistíðinda. (678)
114. mál, bankavaxtabréf
Ráðherra (Kr. J.):
Eg hefi altaf litið svo á, að Landsbankinn gæti heimtað af landssjóðnum samkvæmt þessu frumv. tryggingarfé einnig fyrir því, sem þegar er búið að lána út úr 3. veðdeild. Eg skil frv. þetta svo, að landssjóður eigi að leggja fram helming tryggingarfjárins, líka fyrir því sem þegar er búið að lána út, og sem Landsbankinn er búinn að leggja fram tryggingarefni fyrir.