05.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (690)

154. mál, lántökuheimild

Sigurður Stefánsson:

Frv. þetta er hingað komið frá hv. neðri deild, en það sem mér þykir harla undarlegt við frv. er það, að ekki skuli vera neitt ákvæði um það, með hvaða kjörum lánið skuli tekið. Mér finst hv. n. d. hafa verið í þessu efni nokkuð svipuð manninum, sem tók lánið, hvað sem það kostaði. Þetta þykir illa viðeigandi, og auk þess vantar mig alveg upplýsingar um það, til hvers þessu lánsfé skuli verja. En eftir því sem eg kemst næst, verður þetta einungis eyðslulán, frumvarpið fór því nær umræðulaust í gegn um hv. neðri deild, og þar var bara ekki annað sagt, en að stjórnin mætti taka lán. Eg vil taka það fram, að þetta er hvorki sprottið af tortrygni til núverandi stjórnar né nokkurrar annarar stjórnar landsins. Það er einungis sprottið af varkárni.