26.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í B-deild Alþingistíðinda. (700)
43. mál, læknaskipun
Steingrímur Jónsson:
Í frv. þessu er farið fram á að stofnað sé nýtt læknishérað þannig að undan Seyðisfjarðarhéraði sé tekin Brekkusókn í Mjóafirði og undan Eskifjarðarhéraði Nessókn í Norðfirði. Líkt frv. kom fram í Nd. á þingi 1909, en var felt þá. En eg álít að hér hagi svo til, að af öllum þeim frumvörpum um fjölgun læknishéraða, sem komu fram á því þingi, hafi þetta frv. frekast átt skilið að verða samþykt. Eg kannast við það, að eg er mótfallinn því, að raska lögunum frá 1907 um skipun læknishéraða. Læknum hefir verið fjölgað svo mjög, að allrar varúðar verður að gæta í því efni. Á þingi 1907 var tala reglulegra læknishéraða ákveðin 43, auk tveggja aukalækna. Nú eru læknisembættin 48 vegna þess að á síðasta þingi,1909, voru 3 ný héruð stofnuð. Þetta yrði því 49. embættið. En af því að eg álít að þau 3 héruð, sem voru stofnuð 1909, hafi ekki verið eins nauðsynleg eins og þetta hérað, sem hér er um að ræða, þá er eg þessu frv. samþykkur. Eins og öllum er kunnugt, er afarilt yfirferðar milli fjarðanna austanlands, t. d. er afarslæmur fjallgarður milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar, og sömuleiðis milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, en á hinn bóginn eru engar verulegar torfærur milli Norðfj. og Mjóafjarðar. Það væri því miklu auðveldara að þjóna þessum fjörðum, ef læknirinn hefði aðsetur á Norðfirði. Aðalhluti héraðsins yrði Nessókn í Norðfirði, og eru þar 788 íbúar. Í Brekkusókn er miklu minna, aðeins 287. Til samans er þetta 1075 íbúar. Þó er þetta ekki sú rétta tala, því að á sumrum eru íbúar á þessum fjörðum miklu fleiri, kemur það til af því, að Norðfjörður er eitt hið mesta sjósóknarpláss austanlands, og sækja þangað hvalfangarar og sjómenn, innlendir og útlendir. Er því óhætt að fullyrða, að tala íbúa í héraðinu yrði nálægt 2000 að sumrinu til. Fyrir þessa menn er allerfitt að sækja, hvort sem er til Seyðisfjarðar eða Eskifjarðar. Um þessi héruð er það að segja, að Seyðisfjörður verður eftir sem áður fjölment læknishérað, en Eskifjarðarhéraðið aftur fáment, að eins 1018 manna að íbúa tölu. Að þessu athuguðu álít eg að frv. þetta eigi skilið að ganga fram, til þess að Austfirðingum sé ekki gert rangt til í þessu efni, í samanburði við aðra landshluta, einkum Vestfirði, sem standa miklu betur að vígi að því er læknaskipun snertir.