20.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í B-deild Alþingistíðinda. (725)
27. mál, Maríu- og Péturslömb
Ráðherra (Kr. J.):
Hv. þingm. Ísafjarðarkaupst. (S. St.) hefir áður verið mótfallinn þessu máli, en nú óskaði hann, að það næði fram að ganga. Hann hefir talað í málinu fyr hér á þingi, og þá látið í ljósi líkar efasemdir og hv. þm. V. Ísf. (Kr. Dan.). Mér sýnist ekki betur en hér sé einstökum „prívatmönnum“ gefin gjöf. Það getur verið rétt, en það verður að athuga slíkt, áður en það er gert. Það er enginn vafi á því, að þegar kvöð er létt af jörð, hækkar hún í verði. Leigumálinn „regulerar“ sig af sjálfu sér. Afleiðingin af þessu frv., ef það verður að lögum, yrði þá sú, að leigumáli þeirra jarða, er hér ræðir um, hækkaði. Hér er með öðrum orðum um gjöf að ræða, er kemur eigendum jarðanna í hag. Það verður að athuga málið vel, áður en farið er að gefa slíka gjöf. Þessi ástæða var þess valdandi, að frv. hefir fallið á fyrri þingum. Eg legg ekki til, að málið sé felt, en styð að því, að það sé rætt í nefnd, áður en því er ráðið til lykta.