11.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (73)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Sigurður Stefánsson:
Þeir komu sér ekki sérlega vel saman um fjárhaginn hæstv. ráðherra og háttv. 5. kgk. Hæstv. ráðherra vildi telja tekjuhallann 500 þús. kr. en háttv. 5. kgk. ekki nema 281,000 eins og hann er í fjárlagafrumvarpi neðri deildar. Eg fyrir mitt leyti vil nú miklu fremur halda mér við áætlun hæstv. ráðherra, hvað sem líður áfengistollinum. Eg get ekki verið samdóma háttv. 5 kgk. um það, að enginn tekjuhalli muni verða við árslok 1911. Hann byggir áætlun sína um hinn góða fjárhag á því að tekjurnar muni reynast meiri en áætlað er. Það get eg ekki álitið hyggilegt. Það er ekki rétt að reikna með hærri tekjum en áætlaðar eru, þó reynslan hafi oft orðið sú, að þær færu fram úr áætlun. Eg vil segja, að þingið hafi hingað til farið mjög gætilega og hyggilega í því að áætla tekjurnar ekki of hátt. Hefði það gert það mundi landið vera sokkið í stórskuldir og viðlagasjóður uppétinn. Þó að tekjurnar hafi oft farið fram úr áætlun, þá er það að byggja í lausu lofti að svo verði alt af. Eg hygg meira að segja, að nú sé búið að teygja þær svo hátt, að lítil líkindi eru til að þær fari mikið fram úr áætlun, auk þess sem við því má búast, að hinir síhækkandi tollar á aðfluttum vörum freisti manna til allmikilla tollsvika og mun ekki trútt um, að þegar sé farið að bóla á því, þótt lítt hafi uppvíst orðið.
Hinn góði fjárhagur, sem háttv. 5 kgk. talaði um, var eingöngu bygður á því, að tekjurnar mundu renna örara inn 1911, en það tel eg hæpið, einkum og sér í lagi ef skýrsla ráðherrans er rétt, að ein tekjugreinin sé áætluð um 100 þús. kr. of hátt. Það er rétt hjá háttv. 5. kgk., að það eru tekjurnar, sem einkum eru áætlaðar, gjöldin eru miklu fastari og vissari. Þess vegna tel eg það skyldu þingsins að miða þau við tekjurnar. Háttv. 5. kgk. benti á nýja stefnu, þá, að leggja plön fyrir símalagningum, vegagerðum o. s. frv. Það væri náttúrlega ákjósanlegt, en þegar maður lítur á, hvernig þessi plön hafa reynst í framkvæmdinni, þá sést að þau hafa verið einskis virt. T. d. vegalögin, þar átti að vera plan, vegunum skift í landssjóðsvegi, sýsluvegi og hreppavegi. En hvað verður svo? Það er eftir sem áður komið til þingsins með fjárbeiðnir hreppa og sýsluvega, og fé veitt til þeirra og lögin þannig gerð að pappírslögum. Eg ímynda mér að eftir þeirri hreppapólitík, sem nú er, mundi reka að því sama, þótt farið yrði t. d. að setja lög um það, í hverri röð eigi að leggja símana. Bygðalögin, sem ekki ættu að fá símann stax, mundu leita til landssjóðs um styrk til að leggja hann, og þingið svo fara með símalagningarlögin eins og vegalögin. Eg segi ekki að þetta sé óeðlilegt, þegar litið er til fátæku héraðanna, í raun og veru, en það er óheppilegt fyrir fjárhag landsins að þingið virði einkis sín eigin lög.
Það verða ekki mörg ár þangað til viðlagasjóður er alveg horfinn, ef hann er skertur til muna ár eftir ár. Eg fyrir mitt leyti álít alls ekki hættulegt, þó að hann sé skertur dálítið við og við, en eg verð að segja, að það væri illa farið, ef hann yrði alveg uppétinn á fáum árum. Og eg tek það fram, að viðlagasjóðurinn kemur í rauninni ekki nema að hálfu gagni, þar sem hann stendur fastur í útlánum og ómögulegt að grípa til hans, þó að á liggi, nema þá að örlitlu leyti. Og þar við bætist, að svo getur farið, að sum af þessum útlánum fáist alls ekki. Eg hefi fulla ástæðu til að halda, að sum lánin séu ekki svo vel trygð sem skyldi. Það getur margt borið til þess og eg er ekkert að kenna stjórninni um það eða neinum einstökum mönnum, þó að svona kunni að vera ástatt um sum lánin. En gildi viðlagasjóðsins fer nokkuð að minka, þegar þetta er aðgætt, fyrst það, að landssjóður getur ekki gripið til hans, hvað sem á liggur, og verður heldur að taka lán, ef til vill með hærri rentum en hann fær sjálfur af útlánunum, og í öðru lagi að sum af þessum lánum í eru miður vel trygð.
Háttv. 5. kgk. þm. ber aðallega fyrir brjósti að útvega landinu nægar tekjur þetta eina ár 1912. En mér er spurn, hvernig á sú stjórn, sem á að semja næstu fjárlög, að fá tekjur og gjöld til að standast nokkurn veginn á? Eg hygg, að hún hafi engin ráð til að undirbúa fjárlög nema með stórkostlegum tekjuhalla. Því að þá verður komin alger eyða fyrir áfengistollinum, eða landssjóður er með öðrum orðum algerlega búinn að missa tekjur, sem hafa numið kringum 400 þús kr. á hverju fjárhagstímabili. Með hverju á stjórnin að fylla þessa eyðu? Það hefir verið sagt, að það megi búa til ný skattalög á aukaþinginu, sem væntanlega verður haldið 1912. En eg trúi því ekki, að því þingi, þó að það verði haldið, vinnist tími til að gera slík lög úr garði, svo vel úr garði sem skyldi.
Enn fremur má minnast á það, að jafnframt því sem landssjóður verður sviftur þessum miklu tekjum, má búast við að allmikil ný útgjöld bætist á hann, nfl. til Reykjavíkurhafnar. Það er ómögulegt að búast við því, að það fyrirtæki verði arðberandi beinlínis. Eg neita því ekki, að það verði til óbeins hags fyrir landið, en það getur ekki gefið af sér svo mikla beina vexti, sem þarf að svara út af láni því sem verður tekið til að koma fyrirtækinu á stofn. Að þessu leyti má setja hafnargerðina alveg á bekk með vegalagningum, brúargerðum o. fl. slíkum fyrirtækjum, sem ekki eru beinlínis arðberandi. Þó að höfnin kunni að geta borið sig sjálf í framtíðinni, þá er óhugsanlegt, að landssjóði græðist nokkrar tekjur af henni fyrstu árin að minsta kosti.
Eg skal ekki fara neitt út í frestun bannlaganna að þessu sinni. En viðvíkjandi því sem háttv. 5. kgk. þm. sagði skal eg að eins geta þess, að fjárhagur landsins kunni að slamrast nokkurnveginn af, ef bannlögunum er frestað eitt ár, þá veitir sannarlega ekki af þriggja ára frestun til frekari tekjuauka fyrir landssjóð. Og eg sé ekki, hvað er á móti því að hafa frestinn þetta langan, nema menn óttist að það kunni að verða of mikið af peningum í kassanum. En eg fyrir mitt leyti er alveg óhræddur um það að fjárhagur landssjóðs verði of góður. Allra sízt get eg skilið, hvers vegna hæstv. ráðherra er á þeirri skoðun að hafa frestinn styttri. Honum ætti að vera það kærast, sem gætnum og góðum fjármálamanni, að tekjur landssjóðs verði sem rífastar, enda tók hann það fram í prógramræðu sinni um daginn, að hann vildi stuðla að því, að þingið gengi svo frá fjárlögunum að þau yrðu skapleg, þ. e. þannig að útlit væri fyrir að fjárhagur landssjóðs batnaði. Eg veit, að hann hefir mælt þetta af heilum hug, og eg geng að því vísu að sú stjórn, sem á að semja næstu fjárlög, verði meðmælt frestun bannlaganna, því að annars yrði hún að byggja á skattalögum, sem ekki eru enn orðin til, með öðrum orðum byggja vonir sínar um sæmilegan fjárhag framvegis á algerðri óvissu. Eg tek það fram, að eg álít ekki að þing
og stjórn skilji sómasamlega við fjárlögin, ef nokkur tekjuhalli verður á þeim. Fyrsta skilyrðið fyrir góðum búskap er þetta, að tekjur og gjöld standist á, ekki að eins í bráðina, þetta fjárhagstímabil, sem nú fer í hönd, heldur og einnig framvegis. Tekjurnar mega ekki minka, þær verða miklu fremur að fara vaxandi, til þess, að þing og stjóm þurfi ekki að kippa að sér hendinni vegna fjárskorts og hætta að veita fé jafnvel til stórnauðsynlegra fyrirtækja. Þó að það hafi fleyzt furðanlega hingað til að hafa tekjuhalla á fjárlögum, þá getur að því borið, hvenær sem er, að tekjurnar reynist minni en gizkað er á. Þá yrði að grípa til viðlagasjóðs og það gengi fljótt á hann, þó að ekki væri tekið meira en svo sem 2—3 hundr þús. kr. árlega, eða þá að taka lán á lán ofan og má hver lofa þann búskap fyrir mér; eg geri það ekki.