07.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (732)

27. mál, Maríu- og Péturslömb

Steingr. Jónsson:

Eg hefði getað sparað mér að standa upp; því að háttv. þm. Ísfirðinga tók flest það fram, er eg vildi sagt hafa.

Háttv. þm. Vestur-Ísfirðinga viðurkendi, að þessi kvöð væri orðin úrelt og óvinsæl — því þá ekki afnema hana með lögum? En sem sagt, eins og eg hefi áður tekið fram, vil eg ráða hinni hv. deild til að samþykkja frv. þetta óbreytt.