24.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (751)

63. mál, Húsavík með Þorvaldsstöðum

Steingrímur Jónsson:

Eins og þingdeildarmenn sjá, hefir nefndin klofnað, og hefir meiri hlutinn lagt til að jarðirnar verði seldar, aðeins með þeirri breytingu að verðið sé hækkað um 3000 krónur.

Aftur gerir minni hlutinn ráð fyrir að greiða atkvæði móti frumvarpinu samkvæmt því, sem hann hefir látið uppi í nefndarálitinu.

Eg lít svo á, að þetta geti orðið til svo mikils gagns og þrifnaðar fyrir þorpið, að landsjóður eigi fyrir það að láta jarðirnar af hendi fyrir sanngjarnt verð, sem nefndin telur ekki mega vera minna en 25 þús. krónur. Það er hærra verð en eg hafði sett í frumvarpið og ætla eg að það sé helzt til hátt og gefur jörðin ekki svo mikið af sér, að hún yrði svo hátt sett, ef afgjaldið væri kapitaliserað eftir 4½ % vaxtamæli. Eg hef þó viljað verða samferða meðnefndarmönnum mínum af því eg býst við, að eignin hækki nokkuð í verði fram að söludegi, sem verður varla fyr en eftir ár.

Ástæður minnihlutans eru þær, að hann vill yfir höfuð ekki selja kirkjujarðir eða aðrar þjóðjarðir, svo þær gangi ekki úr opinberri eign. En eg vil benda á, að hér er ekki um það að ræða, að jörðin gangi úr opinberri eign.

Þegar til lengdar lætur, mundi að minni hyggju betra, að allar jarðir landsins væru þjóðjarðir eða opinber eign og hér er einmitt fengin trygging fyrir því, að þessi jörð verði eftirleiðis opinber eign, þegar hún er seld þorpinu sjálfu.

Háttvirtur þingmaður segir, að þorpið muni geta blómgast eins, þó að jörðin sé eign prestlaunasjóðsins og má færa nokkur rök fyrir því, en eg hygg að svo sé þó ekki. Presturinn nýtur launa af jörðinni eftir gömlu lögunum og er það ekki lítils virði í fjölmennu þorpi.

Unnar jarðabætur koma einnig þeim til tekna, sem jörðina eiga.

Þó að brauð þetta komist undir nýju ákvæðin, þá býst eg við, að umráðarétturinn komist ekki í þær hendur, sem réttast og æskilegast væri, nema selt sé. Eg get því ekki fallist á skoðun minni hlutans í þessu máli og vona líka, að deildin samþykki frumvarpið eins og það verður með breytingu nefndarinnar.