15.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (758)
44. mál, kaup á Skálholti
Lárus H. Bjarnason:
Þetta frumvarp er orði til orðs eins og samskonar frumvarp, sem felt var hér í efri deild á síðasta þingi, með 8 atkvæðum móti 4, eftir að við háttvirtur þingmaður Ísafjarðarkaupstaðar og eg höfðum talað örfá orð á móti því. Jafnvel þingmaður Strandamanna fann ekki ástæðu til að taka til máls því til varnar.
Ástæðurnar eru nákvæmlega hinar sömu nú og þá, en þær má finna í B deild alþingistíðindanna blaðsíðu 949.
Stjórninni er falið að gera um kaupin fyrir hvaða verð, sem henni þóknast. — Og er það eitt út af fyrir sig ilt, þó að nú sé betri stjórn við völd en þá.
Önnur ástæða móti frv. er sú, að þó kaup yrði lögleidd á jörðinni landssjóði til handa, þá gæti ábúandi heimtað hana selda sér daginn eftir. Eg býst við að ekki þurfi að eyða frekari orðum að þessu frumvarpi, og legg til að það verði felt.