05.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (764)
37. mál, breyting á fátækralögum
Steingrímur Jónsson:
Eins og hv. framsögum. tók fram, vildum við 2 nefndarmenn helzt leggja til, að frv. yrði felt eins og það liggur fyrir í heild sinni. Við getum ekki séð, að ákvæði 2. og 3. gr., sem frsm. gat um, séu svo mikils virði, að það sé rétt að fara að breyta stórum lagabálk þeirra vegna. Ákvæði fátækralaganna, að dvalarsveit borgi sjálf ? fátækrastyrks, er gott, og engin ástæða til að fara að draga úr því eftir svo stutta reynslu. Því vil eg leggja til, að frv. verði alt felt.