05.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 895 í B-deild Alþingistíðinda. (765)
37. mál, breyting á fátækralögum
Framsögumaður (Kristinn Daníelsson):
Það er dálítill vafi á því, hvort fátækralögin frá 1905 eru alment skilin eins og hv. 4. kngkj. þm. lét í ljósi. Þegar dvalarsveit t. d. sendir þurfamann á sjúkrahús, þá held eg, að dvalarsveitin taki aðeins þátt í kostnaðinum að ? að svo miklu leyti sem kostnaðurinn fellur á í dvalarsveitinni sjálfri. Legukostnaður, sem fellur á utan dvalarsveitar, hygg eg að sé allur greiddur af framfærslusveit sjúklingsins. Þannig held eg að lögin séu alment skilin. En í þessu frumvarpi er einmitt farið fram á að breyta þeim þannig, að dvalarsveit skuli undir öllum kringumstæðum borga ? legukostnaðar í 2 mánuði. Að þessu leyti er því breytingin í þá átt, sem hv. 4. kngkj. þm. vildi mæla með. Annars er eg alt af í vafa um það, hvort þetta ákvæði fátækralaganna er til bóta, að dvalarsveit skuli ekki fá endurgreiddan þriðjung fátækrastyrksins. Af þessu leiðir að dvalarsveitin vill alt af koma fátæklingum sem fyrst af sér og getur það orðið til þess, að þeir séu rifnir upp þaðan sem þeir gætu þó helzt haft nokkurnveginn ofan af fyrir sér. Þess vegna er ákvæðið nokkuð varhugavert og eg hefi sem sagt altaf verið í vafa um, hvort það er til bóta eða ekki.