22.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (773)

25. mál, vegamál

Gunnar Ólafsson:

Þetta atriði kom til tals í nefndinni og var einn hv. nefndarmanna þá ekki ánægður með frumvarpið eins og það lá fyrir. En eg verð að lýsa yfir því, að eg álít þessa brtill. ekki á nægilegum rökum bygða. Eg fæ enganveginn séð, að kauptúnin þurfi að hafa nokkur forréttindi fram yfir önnur hreppsfélög sýslunnar. Meira að segja er í mörgum kauptúnum landslagi svo háttað, að ekki er brýn þörf á miklum vegalagningum. Og þess verður vel að gæta, að vegir frá og til kauptúnanna eru engu síður í þeirra þarfir en sveitanna, sem að liggja.

En ef að nú hreppsfélag, sem er kauptún, þarf endilega að gera meiri vegi en hreppavegagjaldinu nemur, og ef sýsluvegasjóður hefir nokkuð að missa, þá er það leyfi í vegalögunum, að hlaupa undir bagga í þessu efni, þar sem þess er þörf. En sem sagt, eins og eg tók fram, álít eg; þessa brtill. hvergi nærri nauðsynlega.