27.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (80)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Framsögumaður (Steingrímur Jónsson):
Eg get verið stuttorður um þennan kafla, því að nefndin hefir ekki gert tillögur um breytingar á honum. Það eru að eins nokkrar almennar athugasemdir, sem ég vil gera, sérstaklega um starfsemi nefndarinnar.
Nefndin fékk frumvarpið til meðferðar 11. apríl síðdegis. Hún hafði lokið störfum sínum 21. apríl um miðjan dag. Nefndarálitið var búið til prentunar að morgni 24 apríl. Eg tek þetta fram til þess, að menn sjái, hvaða tíma nefndin hefir haft til starfa, af því að mér hefir heyrst á sumum þingmönnum, sem þeim þætti henni ganga verk sitt nokkuð seint. Starfstími nefndarinnar var bæði stuttur og sérstaklega óhentugur, því að mikill hluti hans féll í páskavikunni. Í öðru lagi er þess að gæta, að sömu mennirnir, sem í fjárlaganefndinni sátu, höfðu til meðferðar annað eins stórmál og stjórnarskrármálið.
Þá vil ég og taka annað fram, og það er það, að alstaðar er í nefndarálitinu talað eins og nefndin væri ein, nema á tveim stöðum. Það er að eins þar, að getið er um sérstöðu nokkurra nefndarmanna. En það vóru auk þess ýmsar smáatkvæðagreiðslur í nefndinni, þar sem alt var ekki samþykt í einu hljóði. Sumt var samþykt með 4 atkvæðum, sumt með 3. Yfirleitt þykist ég mega segja, að samvinna í nefndinni hafi verið góð. Menn kostuðu kapps um að verða á eitt sáttir.
Fjárlaganefndin hefir sem sagt ekki komið fram með neinar breytingartillögur við þennan kafla. Eg tel samt rétt að benda á nokkur atriði. Eg ætla að benda á, hvernig tekjurnar nú koma heim við tekjur undanfarandi ára. Nú eru þær áætlaðar 2,887,400 kr. 1906—1907 vóru tekjurnar áætlaðar 2,040,410, en reyndust 3,000,404,57. 1908— 1909 vóru þær áætlaðar 2,322,530 (að frádregnu láninu), en urðu í reyndinni 3,141,571,21; 1910 — 1911 vóru þær áætlaðar 2,930,530, en það er auðvitað enn eigi hægt að segja um, hvernig sú áætlun reynist. Nú eru þær, sem sagt, áætlaðar 2,887,400 kr. eða 40— 50 þús. kr. lægri en fjárhagstímabilið næsta á undan. Tekjur landsins hafa því aukist stórkostlega á seinni árum, en nú álíta menn líka, að komið sé að hámarkinu. Þó að nefndin eigi hér engar breytingartillögur við tekjudálkinn, skal eg þó leyfa mér að bæta hér við dálítilli athugasemd. Eg og nefndin teljum tekjuáætlanir frumvarpsins yfirleitt sennilegar og nærri réttu lagi. Það er þó einn tekjuliður frumvarpsins, sem sumir okkar álíta að sé of hár, og það er áfengistollurinn. Hann er árið 1912 áætlaður 300 þús. kr. Það er með öðrum orðum tollur af áfengi, sem er í tollgæzlu, þegar bannlögin ganga í gildi. Eg álít ekki rétt að áætla hann hærri en um 200 þús. kr. það allra hæsta. Seinna árið er gert ráð fyrir, að hann verði 30 þús. kr. Það er tollur af óáfengu öli, sem þar er átt við, og það finst mér engri átt geta náð. Við höfum dálitla reynslu að byggja á þar. Árið 1909 var allur öltollurinn rúmar 29 þús. kr., en árið 1910 ca. 27,500 kr. Það er, eftir þeirri reynslu, sem vér höfum hér, ekkert vit í að áætla hann svo háan, og sama er að segja um áfengistollinn 1912. Hann er nú ekki meira en 180 þús. kr. En þó að tekjurnar yrðu um 100 þús kr. lægri en áætlað er, er samt enginn voði á ferðum, því að í öðrum liðum er áætlunin ekki of há og á þessu þingi hafa verið samþykt lög, sem gefa 60—70 þúsund kr. tekjuauka, og önnur lög eru á ferðinni, sem gefa um 120 þús. kr. tekjuviðbót á fjárhagstímabilinu, sem sé lög um hækkun á tolli af kaffi og sykri, 1 eyri af sykri og 2 aura af kaffipundinu. Eg hygg því að áætla megi tekjur landsins um 2 milj. og 900 þús. kr. — Eg skal geta þess, að eg kem ef til vill fram með breytingartillögu við 3. umr. um að áætlunin um tekjur af áfengistolli verði færð niður.
Það er að eins ein breytingartillaga komin fram við þennan kafla, frá háttv. þm. V.-Ísf. (Kr. D.) á þgsk. 776 og er það orðabreyting, sem ég hygg, að nefndin geti fallist á.